Íslandsdeild Amnesty International fagnar því að 50 ár eru liðin frá stofnun deildarinnar í Norræna húsinu þann 15. september 1974. Haldið verður upp á þennan merka áfanga með þremur mismunandi viðburðum helgina 13. -15. september.
Nánari upplýsingar um viðburði á Facebook:
Föstudagurinn 13. september: Málþing í Norræna húsinu kl. 12-13. Á ensku.
- Agnès Callamard – aðalframkvæmdastjóri Amnesty InternationalFrom Gaza to the Climate Crisis: Human Rights Activism in an Era of Unthinkable Pain
- Katrín Oddsdóttir – mannréttindalögfræðingur og aðgerðasinni. Human rights without a fight?
- Kári Hólmar Ragnarsson – dósent og mannréttindalögfræðingur. The International Human Rights System’s Continuous Reflection Points
Laugardagurinn 14. september: Stuðningsaðgerð og mannréttindajóga á Austurvelli kl. 14.
Aðgerð til stuðnings Manahel al-Otaibi, líkamsræktarkennara og baráttukonu fyrir kvenréttindum í Sádi-Arabíu. Mælt er með því að mæta í þægilegum fatnaði og með eigin jógadýnu.
Sunnudagurinn 15. september: Skrúðganga og afmælisfögnuður í Iðnó kl. 14-15.
- Gengið frá Hallgrímskirkju og endað í Iðnó. Brasssveit heldur uppi skemmtilegri stemningu með New Orleans-sveiflu.
- Skemmtidagskrá í Iðnó með ávörpum og tónlistarflutningi Bartóna og Los Bomboneros. Veislustjóri er Björk Guðmundsdóttir leikkona og grínisti. Léttar veitingar í boði.
