Þitt nafn bjargar lífi: Viðburðir víða um land

Eins og fyrri ár fer herferðin Þitt nafn bjargar lífi fram á ýmsum stöðum undir öflugri stjórn aðgerðasinna á kaffihúsum, jólamörkuðum, bókasöfnum og í skólum víða um land. Undirskriftum til stjórnvalda er safnað til stuðnings átta einstaklingum og hópum sem sæta mannréttindabrotum víða um heim. 

Ný og spennandi nálgun hefur verið tekin upp í fræðslustarfi Íslandsdeildar Amnesty í skólum landsins í tengslum við herferðina þar sem lögð er áhersla á að virkja samkennd nemenda í garð þolenda mannréttindabrota. Í ár er einnig sú nýbreytni að bókasöfnum gefst færi á að halda samkenndarsmiðju.  

Á döfinni eru fjölbreyttir viðburðir og undirskriftasafnanir í tengslum við herferðina.  

Reykjavík

Háskólatorg, Háskóli Íslands, miðvikudaginn 12. nóvember kl. 12-14.
Starfsfólk Íslandsdeildarinnar kynna samkenndarspjöld og safna undirskriftum fyrir framan Hámu á Háskólatorgi. Boðið verður upp á gular bollakökur.

Spurningakeppni í Stúdentakjallaranum, miðvikudaginn 12. nóvember kl. 20-22. 
Undirskriftum verður safnað í samstarfi við nemendafélög mannfræði- og félagsfræðinema 

Kringlan, lok nóvember.
IB-nemar við Menntaskólann við Hamrahlíð safna undirskriftum í Kringlunni einn eftirmiðdag í síðustu viku nóvember.  

Aðventustund á skrifstofu Íslandsdeildar Amnesty International, laugardaginn 29.nóvember kl. 13-15. 
Gestum boðið að skrifa undir aðgerðakort og stuðningskveðjur til þolenda mannréttindabrota í herferðinni í ár. Boðið verður upp á kaffi og kruðerí. 

Vegagerðin, 1.-18. desember. 
Stjórnarmeðlimur Íslandsdeildar Amnesty International stendur fyrir söfnun undirskrifta meðal starfsfólks dagana. 

Hlutverkasetur, 4.-10. desember. 
Undirskriftasöfnun starfsfólks og þjónustuþega 

Landsbyggðin

Akureyri, 5.-7. desember kl. 11-14.

  • Háskólinn á Akureyri í kaffiteríunni, föstudaginn 5. desember kl. 11-14.  
  • Amtbókasafnið, laugardaginn 6. desember kl. 11-14.  
  • Penninn Eymundsson, sunnudaginn 7. desember kl. 11-14.  

Egilsstaðir, laugardaginn 13. desember frá kl. 10-16. 
Jólakötturinn, í Landsnetshúsinu. 

Kópasker, 5. desember og 12. desember kl. 13-18.
Verslunin Skerjakolla, föstudagana 5. desember og 12. desember.  

Þátttaka bókasafna

Undirskriftasöfnun fer fram á eftirtöldum bókasöfnum á opnunartíma safnana. 

Höfuðborgarsvæðið:

Borgarbókasafnið Grófinni, 15. nóvember – 10. desember.

  • Haldin verður samkenndarsmiðja, laugardaginn 15. nóvember frá kl. 15-17.
  • Undirskriftum safnað fram til 10. desember.

Bókasafnið í Úlfarsárdal, dagana 4.-10. desember.  

Bókasafnið Sólheimum, dagana 4.-10. desember.  

Landsbyggðin:

Héraðsbókasafn Rangæinga, 17. nóvember.

Bókasafn Árborgar, dagana 4.-10. desember.

Bókasafn Reykjanesbæjar, dagana 4.-18. desember.  

Bókasafnið á Laugum, dagana 4-.10. desember. 

Bókasafnið á Húsavík, dagana 4.-10. desember.  

Bókasafn Dalvíkurbyggðar, dagana 4-10. desember.