Aðgerðastarf
Skráðu þig í ungliðahreyfinguna
Ungliðahreyfing Íslandsdeildar Amnesty International er félagsskapur eingöngu fyrir ungt fólk á aldrinum 14-25 ára.
Ungliðahreyfingin er opin öllum áhugasömum ungmennum sem vilja taka þátt í að skipuleggja viðburði og aðgerðir í þágu mannréttinda.
Með þátttöku í ungliðahreyfingunni gefst ungu fólki tækifæri til að láta gott af sér leiða, valdeflast, taka þátt í alþjóðlegu mannréttindastarfi bæði innanlands og erlendis og fá þjálfun í viðburðastjórnun.
Markmið ungliðahreyfingarinnar er:
- Að vekja athygli á mannréttindum
- Að skipuleggja viðburði og aðgerðir
- Að halda jafningjafræðslu
- Að taka þátt í alþjóðastarfi Amnesty International
- Að vera vettvangur fyrir ungmenni til að afla sér reynslu og þekkingu
Skráðu þig í hóp aðgerðasinna
Viltu gera heiminn að betri stað?
Aðgerðasinnar (e. activists) berjast fyrir samfélagslegum breytingum.
Aðgerðasinnar Amnesty International taka þátt í að safna undirskriftum til stuðnings þolenda mannréttindabrota, skipuleggja aðgerðir til að vekja athygli á mannréttindabaráttu og auka þekkingu fólks á mannréttindum með þátttöku í skipulögðum viðburðum og fræðslu.
Hópur aðgerðasinna er fyrir alla aldurshópa og er aðskilinn frá ungliðahreyfingunni.
Skráðu þig í hóp aðgerðasinna Amnesty International til að berjast fyrir því að mannréttindi séu virt um heim allan.
