Sádi-Arabía: Ekkert umburð­ar­lyndi gagn­vart gagn­rýni

Stjórn­völd í Sádi-Arabíu sýna ekkert umburð­ar­lyndi gagn­vart gagn­rýni. Fólk hlýtur nú harðari dóma en Amnesty Internati­onal hefur nokkru sinni áður skrá­sett í Sádi-Arabíu fyrir að nýta rétt sinn til tján­ingar.

Frumvarp til fyrstu almennu hegningarlöggjafar Sádi-Arabíu, sem er ekki enn búið að opinbera en var lekið var út, gengur í berhögg við alþjóðlega mannréttindastaðla og afhjúpar hræsnina á bak við loforð krónprinsins Mohammed bin Salman um framfarir og umburðarlyndi í landinu.

Yfir­völd í Sádi-Arabíu mega ekki komast upp með það að þagga niður raddir og sögur þeirra einstak­linga sem yfir­völd hafa fang­elsað í aðför sinni gegn tján­ing­ar­frelsinu.

Íslensk stjórnvöld sýndu forystu í mannréttindaráði sameinuðu þjóðanna árið 2019 vegna stöðu mannréttinda í Sádi-Arabíu. Þau geta enn haft forystu um að þrýsta á stjórnvöld í Sádi-Arabíu.

SMS-félagar krefjast þess að íslensk stjórn­völd beiti sér fyrir því að yfir­völd í Sádi-Arabíu leysi öll þau úr haldi sem hafa rang­lega verið fang­elsuð fyrir að nýta rétt sinn til tján­ingar.

Lestu meira hér.