Á hverju ári blæs Íslandsdeild Amnesty International til herferðarinnar, Þitt nafn bjargar lífi, sem er alþjóðleg mannréttindaherferð við að safna undirskriftum til stuðnings einstaklinga eða hópa sem þolað hafa mannréttindabrot.
Fastur liður í herferðinni er framhaldsskólakeppni í undirskriftasöfnun, þar sem ungt fólk er hvatt til að beita sér í þágu mannréttinda. Í ár tóku 23 framhaldsskólar þátt og 6740 undirskriftir söfnuðust til stuðnings einstaklingum og hópum fyrir Þitt nafn bjargar lífi.
Verðlaunin Mannréttindaskóli ársins eru veitt í tveimur flokkum, fyrir flestar safnaðar undirskriftir og fyrir hlutfallslega flestar undirskriftir miðað við nemendafjölda. Sigurvegarar keppnarinnar í ár voru Kvennaskólinn í Reykjavík með flestar undirskriftir og Framhaldsskólinn á Laugum með flestar undirskriftir miðað við nemendafjölda.
Íslandsdeild Amnesty International veitti verðlaunin í síðustu viku og óskar skólunum innilega til hamingju. Einnig þökkum við kærlega öllum skólum, nemendum og nemendafélögum sem tóku þátt í átakinu.
Hver undirskrift skiptir máli!


