Aðalfundur Íslandsdeildar Amnesty International verður haldinn fimmtudaginn 6. mars 2025 kl. 18 í húsnæði deildarinnar, Þingholtsstræti 27, 101 Reykjavík, 3. hæð
Ársskýrsla Íslandsdeildar Amnesty International fyrir árið 2024 verður kynnt á fundinum.
Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf, m.a.:
- Skýrsla stjórnar um liðið starfsár kynnt
- Starfsáætlun fyrir komandi starfsár lögð fram
- Skýrsla stjórnar um fjárhag deildarinnar og fjárhagsáætlun kynnt
- Ársreikningar lagðir fram til samþykktar
- Kosning stjórnar og félagskjörinna skoðunarmanna
- Ákvörðun tekin um upphæð árgjalds
- Lagabreytingar
- Önnur mál
Íslandsdeild hvetur alla áhugasama um mannréttindi til að bjóða sig fram í stjórn samtakanna.
Spurningum varðandi kosningu og stjórnarsetu skal beint til Evu Einarsdóttur, formanns Íslandsdeildar Amnesty International á netfangið eva@amnesty.is.
