Salma al-Shehab er nú laus úr haldi en hún sat í fangelsi í rúm fjögur ár vegna ákæra á grundvelli laga gegn hryðjuverkum fyrir að birta tíst til stuðnings kvenréttindum.
Salma al-Shehab, doktorsnemi við Leeds háskóla og tveggja barna móðir, var handtekin 15. janúar 2021 fyrir að tísta og endurtísta færslum kvenréttindafrömuða Sádi-Arabíu á Twitter, sem nú heitir X. Hún var meðal annars ákærð fyrir að „raska allsherjarreglu, og raska öryggi samfélagsins og stöðugleika ríkisins.”
„Þrautagöngu Salma al-Shehab er loksins lokið. Í meira en fjögur ár hefur hún sætt hverju óréttlætinu á fætur öðru, þar á meðal átti hún um tíma yfir höfði sér 34 ára fangelsisvist fyrir færslur sínar á samfélagsmiðlum. Hún sætti einangrunarvist í næstum 300 daga, var neitað um lögfræðiaðstoð og var síðan ítrekað dæmd á grundvelli laga gegn hryðjuverkum og dæmd til áratugalangrar fangelsisvistar. Aðeins vegna þess að hún tísti til stuðnings kvenréttindum og endurtísti færslum annarra kvenréttindafrömuða Sádi-Arabíu. Yfirvöld í Sádi-Arabíu verða nú að tryggja að hún sæti ekki ferðabanni eða frekari refsiaðgerðum.“
Dana Ahmed, rannsakandi Amnesty International í Miðausturlöndum
Í mars 2022 dæmdi sérstaki sakamáladómstóllinn Salma al-Shehab í sex ára fangelsi. Við áfrýjunarréttarhöld yfir henni í ágúst 2022 krafðist ákæruvaldið harðari refsingar sem leiddi til þess að sérstaki sakamáladómstóllinn herti dóm hennar í 34 ár. Í janúar 2023 var dómnum breytt í kjölfar þess að hæstiréttur vísaði máli hennar aftur til sérstaka sakamáladómstólsins eftir að hún áfrýjaði málinu. Í þetta sinn var hún dæmd í 27 ára fangelsi ásamt 27 ára ferðabanni að lokinni afplánun.
Í september 2024, eftir að hæstiréttur sendi mál hennar aftur til sérstaka sakamáladómstólsins, var fangelsisrefsing hennar lækkuð úr 27 árum í fjögurra ára fangelsi og til fjögurra ára á skilorði. Fjögurra ára fangelsisdómi hennar lauk í desember 2024 og var hún loks látin laus í þessum mánuði.
„Þó að dagurinn í dag sé dagur til að fagna lausn Salma, þá er hann líka tækifæri til að huga að mörgum öðrum sem afplána álíka langa dóma í Sádi-Arabíu fyrir aðgerðir sínar á netinu.“
Dana Ahmed, rannsakandi í Miðausturlöndum
Meðal annarra sem afplána álíka langa dóma má nefna konur eins og Manahel al-Otaibi og Noura al-Qahtani, sem voru dæmdar í fangelsi fyrir að tala fyrir réttindum kvenna og Abdulrahman al-Sadhan, sem dæmdur var í 20 ára fangelsi fyrir háðsádeilutíst.
Við hvetjum yfirvöld í Sádi-Arabíu til að leysa þau úr haldi án tafar og binda enda á vægðarlausa aðför stjórnvalda að tjáningarfrelsinu í eitt skipti fyrir öll.
Lausn Salma al-Shehab hefði ekki verið möguleg án þrotlausrar baráttu aðgerðasinna um allan heim.
Íslandsdeild Amnesty International tók fyrir mál hennar árið 2024 og söfnuðust samtals 2976 undirskriftir.
