Kamile Wayit, Úígúri og nemi í Henan í Kína var handtekin af lögreglu þann 12. desember 2022 þegar hún kom heim í frí til Atush í Xikiang héraði.
Í nóvember sama ár hafði hún birt myndband á samfélagsmiðlinum WeChat af A4 mótmælunum sem áttu sér stað víðs vegar í Kína eftir bruna í íbúðabyggingu í Urumqi þar sem 10 einstaklingar létu lífið. Stuttu síðar fékk faðir Kamile símtal frá lögreglunni og í kjölfarið eyddi hún færslunni.
Kamile hefur nú verið í haldi í fjóra mánuði án samskipta við fjölskyldu sína eða lögfræðing að eigin vali. Hætta er á því að hún sæti pyndingum eða annarri illri meðferð.
SMS-félagar krefjast þess að Kamile verði leyst úr haldi umsvifalaust nema fyrir liggi fullnægjandi sönnunargögn um að hún hafi framið refsivert brot samkvæmt alþjóðalögum.

