Aðalfundur Íslandsdeildar Amnesty International verður haldinn þriðjudaginn 21. mars 2023 kl. 17:00 í húsnæði deildarinnar, Þingholtsstræti 27, 101 Reykjavík, 3. hæð.
Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf, m.a.:
- Skýrsla stjórnar um liðið starfsár kynnt
- Starfsáætlun fyrir komandi starfsár lögð fram
- Skýrsla stjórnar um fjárhag deildarinnar og fjárhagsáætlun
- Ársreikningar lagðir fram til samþykktar
- Kosning stjórnar og félagskjörinna skoðunarmanna
- Ákvörðun um upphæð árgjalds
- Lagabreytingatillögur
- Önnur mál
Íslandsdeild hvetur alla áhugasama um mannréttindi til að bjóða sig fram í stjórn samtakanna.
Spurningum varðandi kosningu og stjórnarsetu skal beint til Evu Einarsdóttir, formanns Íslandsdeildar Amnesty International á netfangið eva@amnesty.is.
