Þann 18. apríl 2020 voru 15 leiðtogar og aðgerðasinnar handteknir fyrir ólöglega samkomu sem átti sér stað sex mánuðum áður. Þetta er nýjasta dæmið um hvernig lögreglan reiðir sig á óskýr lög um allsherjarreglu sem voru mikið notuð árið 2019 til að koma í veg fyrir fjölmenn og friðsæl mótmæli. Þessar handtökur eru þungt högg fyrir tjáningarfrelsið í Hong Kong.
Fimm þeirra sem voru handteknir eru einnig ákærðir fyrir skipulagningu á öðrum mótmælum. Samkvæmt þessum lögum um allsherjarreglu í Hong Kong má einungis halda friðsæl mótmæli með fyrirfram gefnu samþykki frá lögreglu. Lögreglan hefur völd til að banna fjölmennar samkomur ef hún telur almenning í hættu.
Skráðu þig í sms-aðgerðanetið hér! Sendu svo AKALL í númerið 1900 til að skrifa undir málið.
Sótt hafði verið um leyfi fyrir þessum mótmælum en lögreglan samþykkti þau ekki. Í kjölfar þess að mótmæli urðu algengari seinni hluta ársins 2019 þrengdi lögreglan enn að og bannaði fleiri mótmæli en áður.
Alþjóðleg mannréttindalög kveða á um réttinn til að mótmæla og ekki á að þurfa leyfi frá yfirvöldum til þess.
SMS-félagar krefjast þess að allar ákærur verði felldar niður, hætt verði að ákæra saklausa mótmælendur og að lög um allsherjarreglu verði aðlöguð að alþjóðlegum mannréttindalögum og í takt við tjáningarfrelsið.
