Baráttukonan Atena Daemi er laus úr haldi! Mál hennar var partur af herferðinni Þitt nafn bjargar lífi 2018.
Atena Daemi var ötul í baráttunni gegn dauðarefsingunni í Íran. Hún skrifaði stöðufærslur á Facebook og Twitter þar sem hún gagnrýndi aftökur í landinu. Hún dreifði bæklingum og tók þátt í friðsamlegum mótmælum gegn aftöku á ungri konu. Því miður krefjast aðgerðir sem þessar mikils hugrekkis í Íran.
Hún var dæmd í sjö ára fangelsi og aðgerðir hennar voru notaðar gegn henni sem sönnunargögn fyrir glæpsamlegu athæfi. Réttarhöld í máli hennar voru farsi þar sem þau tóku aðeins fimmtán mínútur og var hún sakfelld fyrir upplognar sakir. Þeirra á meðal var það „að leggja á ráðin um að fremja glæp gegn þjóðaröryggi“.
Hún sat í fangelsi í fimm ár.

