Palestína: 1150 palestínubúar eiga á hættu þvingaða brottflutninga

Jamila og Muhammad Abu Sabha og sex börn þeirra eru á meðal 180 palestínskra fjölskyldna sem eiga á hættu þvingaða brottflutninga frá Masafer Yatta, í suðurhluta Vesturbakkans á hernumdu svæðum Palestínu.

Stefnt er að rífa niður níu þorp á svæðinu þar sem búa um  1150 palestínubúar  og er helmingur íbúanna börn. Eftir 23 ára málsmeðferð komst hæstiréttur Ísrael að þeirri niðurstöðu, þann 4. maí 2022, að brottflutningarnir í Masafer Yatta eigi rétt á sér. Umsvif Ísraelshers á svæðinu hafa aukist frá niðurstöðu dómstólsins sem veldur ótta um niðurrif heimila sé yfirvofandi.

Kerfisbundnir þvingaðir brottflutningar af þessari stærðargráðu á hernumdum svæðum Palestínu er stríðsglæpur og glæpur gegn mannúð.  

SMS-félagar krefjast þess að allar áætlanir um niðurrif palestínskra heimila Í Masafer Yatta verði stöðvaðar án tafar.

Einnig er þess krafist að hætt verði við alla þvinguða brottflutninga á hernumdum svæðum á Vesturbakkanum og að Ísrael hætti að brjóta á mannréttindum Palestínubúa á hernumdu svæðunum.