Íslandsdeild Amnesty International og Mannréttindaskrifstofa Íslands hafa gefið út þrjú fræðslumyndbönd um mannréttindi á sex tungumálum (íslensku, ensku, pólsku, spænsku, persnesku og arabísku). Myndböndin þrjú fjalla um jafnrétti, réttindi á vinnumarkaði og réttindi barna. Markmiðið með myndböndunum er að veita flóttafólki og öðrum innflytjendum gagnlegar grunnupplýsingar um réttindi í þessum þremur málaflokkum í tengslum við íslenskt samfélag.
Myndböndin eru hluti verkefnis Íslandsdeildar Amnesty International Gagnkvæm aðlögun flóttafólks og verkefnis Mannréttindaskrifstofu Íslands um gerð fræðsluefnis fyrir flóttamenn og innflytjendur út frá sjónarhóli mannréttinda.
Fræðslumyndböndin voru unnin í samvinnu við framleiðslufyrirtækið KIWI, Alþýðusamband Ísland, sérfræðinga á sviði mannréttinda og síðast en ekki síst fólk sem hingað hefur komið til lands á flótta og deilir sinni reynslu. Á næstu misserum stefna Íslandsdeild Amnesty International og Mannréttindaskrifstofa Íslands að framleiðslu fleiri fræðslumyndbanda er snerta á mikilvægum.
Myndböndin, ásamt upplýsingum má nálgast á heimasíðu Mannréttindaskrifstofu Íslands og á heimasíðu Íslandsdeildar Amnesty International.
Það er von Íslandsdeildar Amnesty International og Mannréttindaskrifstofu Íslands að fræðslumyndböndin nái sem mestri dreifingu til að fræða sem flesta einstaklinga sem hafa flutt til Íslands. Það er mikilvægt að fólk þekki íslenskt samfélaga og réttindi sín sér og öðrum til gagns.
Myndband #1 Mannréttindi eru okkar allra: Jafnrétti
Samkvæmt Mannréttindayfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna, alþjóðlegum samningum og innlendum lögum eigum við öll að njóta mannréttinda og frelsis frá mismunun. Jafnrétti þýðir að allir eru jafnir og enginn greinarmunur er gerður vegna kynþáttar, litarháttar, kynferðis, tungu, trúar, stjórnmálaskoðana eða a nnarra skoðana, þjóðernis, uppruna, eigna, ætternis eða annarra aðstæðna.
Í þessu myndbandi er farið yfir stöðu jafnréttis á Íslandi út frá sögu, lögum og reynslu fólks sem hér hefur fengið stöðu flóttafólks.
Myndband #2 Mannréttindi eru okkar allra: Vinnuréttindi
Við eigum öll rétt á vinnu og sanngjörnum launum. Við megum öll vera í stéttarfélagi. Á Íslandi eru í gildi sérstök lög um réttindi og skyldur á vinnumarkaði. Þar á meðal eru lög um stéttarfélög, laun og starfskjör, vinnutíma og jafna meðferð á vinnumarkaði.
Í þessu myndbandi er farið yfir vinnuréttindi á Íslandi, gagnlegar upplýsingar um vinnuréttindi og reynslusögur fólks, sem hér hefur fengið stöðu flóttafólks, af vinnumarkaðinum.
Myndband #3 Mannréttindi eru okkar allra: Réttindi barna
Börn eru sérstaklega viðkvæmur hópur. Samkvæmt alþjóðalögum og Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna ber stjórnvöldum, foreldrum og forráðamönnum og öðrum að standa vörð um hagsmuni barna. Börn eiga rétt til lífs, verndar, þátttöku og þroska og lærdóms. Börn eru sjálfstæðir einstaklingar með fullgild réttindi, óháð réttindum fullorðinna.
Í þessu myndbandi er farið yfir réttindi barna á Íslandi út frá Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og öðrum alþjóða- og landslögum, sem og reynslu fólks sem hér hefur fengið stöðu flóttafólks.

