Högni Egilsson og tjáningarfrelsið í DHL-höllinni

Íslandsdeild Amnesty International vekur athygli á viðburði sem fer fram í kvöld fimmtudag, 11. mars, kl. 20.15  á leik KR og Vals í Dominosdeild karla í körfubolta í DHL höllinni.

Högni Egilsson, fyrrum körfuboltakappi Vals sem er betur þekktur fyrir tónlist sína, tekur 1-2 lög í upphafi leiks og segir nokkur orð um tjáningarfrelsið. 

Bæði lið ætla að klæðast Amnesty sokkunum Hvað eru mannréttindi?eftir Berg Guðnason. Íslandsdeild Amnesty International vill einmitt vekja athygli á því með þessum viðburði að það eitt að tjá skoðanir sínar eru mannréttindi sem eru varin í alþjóðalögum. 

Aðgerðasinnar frá Háskólafélagi Amnesty International munu því safna undirskriftum fyrir mál Pablo Hasél, spænska rapparans sem nýlega var dæmdur í 9 mánaða fangelsi fyrir vegsömun“ hryðjuverka sem og „róg og níð gegn krúnunni og stjórnkerfi“ landsins. Dómurinn var byggður á færslum á Twitter og texta í rapplagi. Hann er dæmdur fyrir það eitt að nýta tjáningarfrelsið sitt. 

Pablo er ekki sá eini sem hefur hlotið slík örlög þar í landi. Ákvæði um refsingu fyrir vegsömun hryðjuverka, róg og níð gegn krúnunni og ríkisstofnunum eða fyrir að misbjóða trú í hegningarlögum eru svo víðfeðm að spænskir borgarar eiga á hættu saksókn fyrir lögmæta tjáningu. Lesið meira um tjáningarfrelsið á Spáni hér.

Amnesty International krefst þess að stjórnvöld á Spáni: 

1) Afnemi þessi ákvæði úr hegningarlögum. 

2) Felli niður allar ákærur sem eru byggðar á ákvæði 578 og leysi alla einstaklinga úr haldi sem hafa verið fangelsaðir á grundvelli þess fyrir að nýta rétt sinn til tjáningar með friðsömum hætti.

Við hvetjum þá sem geta að mæta á þennan æsispennandi leik og skrifa undir ákallið á staðnum. Einnig er hægt að horfa á leikinn og Högna taka lagið í beinni á Stöð2 Sport og skrifa undir ákallið hér.