Aðalfundur Íslandsdeildar Amnesty International 2021

Aðalfundur Amnesty International verður haldinn miðvikudaginn 17. mars 2021 kl. 17:00 í húsnæði deildarinnar, Þingholtsstræti 27, 101 Reykjavík, 3. hæð.

Einnig verður í boði fjarfundur til að gefa sem flestum félögum tækifæri til að taka þátt og fylgjast með starfi deildarinnar. Hlekkur á fjarfund

Vinsamlegast skráið ykkur fimmtán mínútum áður en fundur hefst til að hægt sé að staðfesta kosningarétt.

  • Notendanafn/Meeting ID: 818 8450 0254
  • Aðgangsorð/Password: Fundur2021

Íslandsdeild hvetur alla áhugasama um mannréttindi til að bjóða sig fram í stjórn samtakanna.

Dagskrá:

– Skýrsla stjórnar um liðið starfsár lögð til samþykktar

– Skýrsla stjórnar um fjárhag samtakanna og fjárhagsáætlun lagðar fram til samþykktar

– Ársreikningar lagðir fram til samþykktar

– Kosning stjórnar og félagskjörinna skoðunarmanna

– Ákvörðun um upphæð árgjalds

– Lagabreytingatillögur

– Önnur mál

Gestafyrirlesari: Úígúri með stöðu flóttamanns á Íslandi segir áhugaverða sögu sína og ræðir um ofsóknir Kínverja gegn þessum minnihlutahópi í Kína.

Íslandsdeild Amnesty hvetur félaga sem hafa áhuga á mannréttindum til að bjóða sig fram í stjórn samtakanna.

Spurningum varðandi kosningu og stjórnarsetu skal beint til Þórhildar Elísabetar Þórsdóttur, setts formanns Íslandsdeildar Amnesty International á netfangið thorhildur@amnesty.is.