Aðalfundur Íslandsdeildar Amnesty International 2020

Aðalfundur Amnesty International verður haldinn fimmtudaginn 18. júní 2020 kl. 17:00 í húsnæði deildarinnar, Þingholtsstræti 27, 101 Reykjavík, 3. hæð.

Einnig verður í boði fjarfundur til að gefa sem flestum félögum tækifæri til að taka þátt og fylgjast með starfi deildarinnar. Hlekkur á fjarfund

Vinsamlegast skráið ykkur fimmtán mínútur áður en fundur hefst til að hægt sé að staðfesta kosningarétt.

Íslandsdeild hvetur alla áhugasama um mannréttindi til að bjóða sig fram í stjórn samtakanna.

Dagskrá:

– Skýrsla stjórnar um liðið starfsár lögð til samþykktar

– Skýrsla stjórnar um fjárhag samtakanna og fjárhagsáætlun lagðar fram til samþykktar

– Ársreikningar lagðir fram til samþykktar

– Kosning stjórnar og félagskjörinna skoðunarmanna

– Ákvörðun um upphæð árgjalds

– Lagabreytingar. Smelltu hér til að sjá lagabreytingatillögur.

– Önnur mál

Spurningum varðandi kosningu og stjórnarsetu skal beint til Bjargar Maríu Oddsdóttur, formanns Íslandsdeildar Amnesty International á netfangið bjorg@amnesty.is.