Nýr vefur Íslandsdeildar Amnesty International hefur verið tilnefndur til íslensku vefverðlaunanna í flokki samfélagsvefja. Íslensku vefverðlaunin, uppskeruhátíð vefiðnaðarins á Íslandi, verða haldin á vegum Samtaka vefiðnaðarins (SVEF) þann 22. febrúar.
Nýi vefurinn fór í loftið í október 2018 og hefur fengið frábær viðbrögð. Hönnunarstofan Kolofon sá um forritun og hönnun á síðunni.
Verðlaun eru veitt í 11 flokkum, þar að auki verða sérstök verðlaun fyrir hönnun og viðmót sem og vef ársins. Einnig verður veitt viðurkenning fyrir aðgengilegasta vefinn. Hér má sjá hvaða vefir eru tilnefndir í sama flokki:
Samfélagsvefur
– Bleika slaufan
– Fólkið í Eflingu
– Íslandsdeild Amnesty International
– Velvirk.is
– Umferðarvefur Samgöngustofu

