Réttlát orkuskipti
Yfirlit
Loftslagsbreytingar ógna fjölmörgum mannréttindum á borð við rétt til vatns, heilsu og lífs. Loftslagsváin eykur kerfislægan ójöfnuð og mismunun.
Alþjóðahagkerfið þarf því að hverfa frá notkun jarðeldsneytis og snúa sér að endurnýjanlegri orku.
En hætta er á að orkuskiptin brjóti á mannréttindum fólks og valdi umhverfisspjöllum þar sem þau krefjast stóraukningar á námugreftri á málmi og steinefnum. Breyti námufyrirtæki og stærstu kaupendur þeirra ekki um stefnu er hætta á að það bitni á mannréttindum samfélaga eins og frumbyggjasamfélögum í grennd við námuvinnslu. Verði það ekki gert er réttlát og sjálfbær framtíð ekki tryggð.
Nú er kominn tími til að grípa til aðgerða sem tryggja umhverfisvæn og mannréttindamiðuð orkuskipti.
Hvað felst í orkuskiptunum?
Stjórnvöld og ýmis iðnaður á alþjóðavísu eru nú þegar að færa sig í átt að endurnýjanlegri orku. Til að draga úr notkun jarðefnaeldsneytis hefur orðið veruleg aukning á notkun á endurhlaðanlegum rafhlöðum fyrir rafmagnsbíla og orkugeymslur.
Kóbalt, kopar, nikkel og liþíum eru helstu efnin í endurhlaðanlegum rafhlöðum fyrir rafmagnsbíla og strætisvagna. Þessar rafhlöður eru einnig mikið notaðar í tæki eins og farsíma, fartölvur, myndavélar og rafmagnsverkfæri. Árið 2030 má búast við að tvöfalt meiri eftirspurn verði eftir nikkel, áttfalt meiri eftir mangan og tífalt meiri eftir kóbalt og liþíum miðað við framleiðslu í byrjun þessa áratugar.
Stjórnvöld og fyrirtæki sem tengjast þessum alþjóðlega iðnaði stytta sér oft leið með því að líta fram hjá mannréttindastöðlum, öryggisreglum og umhverfisvernd til að græða sem mest. Alþjóðleg risafyrirtæki líta ítrekað fram hjá umhverfis- og fjármálaglæpum eða eru jafnvel viðriðin slíka glæpi.
Stjórnvöld bregðast oft skyldum sínum til að bæta fyrir og rannsaka opinberlega spillingu, umhverfismengun, brot á réttindum vinnuafls og enn síður að lögsækja fyrir slík brot. Það er nánast óheyrt að fyrirtæki bæti fyrir skaða sem samfélög verða fyrir vegna námugröfts.
Næstu árin má búast við að verksmiðjur auki verulega framleiðslu á rafhlöðum. Fjárfestingar í jarðefnaeldsneyti munu í auknum mæli dragast saman og meira verður um fjárfestingar í endurnýjanlegri orku. Þessi fjárfesting er þó oft gerð án áreiðanleikakönnunar um að fjárfestingin ýti ekki undir brot á réttindum.
Fyrirtæki og fjárfestar einblína eingöngu á útþenslu frekar en auðlindarnýtni, endurnýtingu og endurvinnslu. Þrýst er á meiri námugröft á steinefnum en á sama tíma eykst sóunin.
Ríki, fyrirtæki, fjárfestar og neytendur hafa nú tækifæri til að skuldbinda sig til að styðja orkuskipti þar sem tryggt er að mannréttindi séu virt og vernduð.
Áhrif á mannréttindi
Aukin notkun endurhlaðanlegra rafhlaðna hefur haft neikvæð áhrif á svæðum sem eru rík af steinefnum eins og í svokölluðum „liþíumþríhyrningi“ í Suður-Ameríku og á kóbaltnámusvæði Lýðstjórnarlýðveldisins Kongó þar sem iðnaðurinn í tengslum við það hefur lengi verið óheftur.
Amnesty International hefur rannsakað ítarlega hættur sem stafa af námugrefti vegna orkuskipta sem geta bitnað á mannréttindum og umhverfinu.
- Lýðstjórnarlýðveldið Kongó: Heilu samfélögin eru þvinguð af heimilum sínum og ræktarland tekið af þeim fyrir stækkandi námuiðnað sem sækist eftir kóbalti og kopar. Börn allt niður í sjö ára eru látin grafa eftir málmi í námunum fyrir lág laun og við hættulegar aðstæður.
- Salar de Atacama í Síle, Argentínu og Bólivíu: Námugröftur eftir liþíum og kopar er ógn við réttindi frumbyggja sem þar búa og rétt þeirra til sjálfsákvörðunar. Vatnsbólum og vistkerfi á svæðunum er einnig ógnað sem hefur áhrif á lífsviðurværi og menningu þessara samfélaga.

Fyrirtækjum í námugreftri steinefna ber skylda til að tryggja mannréttindi hvar sem viðskipti eru stunduð og vinna að úrbótum þegar brotið er á réttindum fólks í tengslum við starfsemi þeirra eða af hálfu viðskiptatengsla. Binda þarf tafarlaust enda á barnaþrælkun, þvingaða brottflutninga, mengun og hættulegar vinnuaðstæður.
Um allan heim hefur illa útfærð meðferð úrgangs frá námuiðnaðinum leitt til langvarandi mengunar sem skaðar heilsu fólks án þess að nokkur aðili sé látinn bera ábyrgð á hreinsun eða úrbótum. Á sama tíma er lagt kapp á að finna nýjar auðlindir af steinefnum fyrir rafhlöður með námugreftri á hafsbotni. Það stofnar vistkerfi sjávarbotns í alvarlega hættu með óafturkallanlegum hætti og ógnar lífsviðurværi samfélaga sem lifa við sjóinn.
Orkuskipti eru bráðnauðsynleg eftir því sem loftslagsváin eykst. Lausnir mega þó ekki að vera á kostnað mannréttinda.
Hver er lausnin?
Hægt er að komast hjá því að mannréttindabrot séu hluti af orkuskiptum. Það er ólíðandi að orkuskipti tengist misbeitingu vinnuafls, eignasviptingum og umhverfisspjöllum.
Stjórnvöld sem tengjast verðmætakeðju endurhlaðanlegra rafhlaðna hafa nú tækifæri til að móta stefnu í orkuskiptum þar sem mannréttindi eru tryggð.
Fyrirtæki sem hafa markað sig sem leiðandi í sjálfbærni á alþjóðavísu verða að setja mannréttindi og umhverfismál í forgang til að forðast að dýpka þann ójöfnuð og óréttlæti sem nú þegar er til staðar.
Fyrirtæki, fjárfestar og stjórnvöld geta komið í veg fyrir mannréttindabrot og náttúruspjöll með mannréttindamiðaðri nálgun í tengslum við verðmætakeðju rafhlaðna.
Amnesty International hefur gefið út meginreglur fyrir fyrirtæki og stjórnvöld sem er ætlað að koma í veg fyrir brot á mannréttindum og umhverfisspjöll í tengslum við framleiðslu á endurhlaðanlegum rafhlöðum.
Meginreglurnar eru leiðbeinandi reglur um þau skref sem stjórnvöld og fyrirtæki verða að taka til að koma í veg fyrir slík brot. Um 70 alþjóðleg samtök og einstaklingar hafa lýst yfir stuðningi sínum við þeim.
Amnesty International hefur gert rannsóknir og áköll sem tengjast orkuskiptum. Má þar nefna skýrslu um þvingaða brottflutninga í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó vegna námugraftar. Í tengslum við rannsóknina var ákall til stjórnvalda þar í landi um að stöðva þvingaða brottflutninga og mannréttindabrot í grennd við kopar- og kóbaltnámu.
Hvað þarf að gera?
Stjórnvöld
Tilmæli Amnesty International til stjórnvalda:
- Tryggja hröð orkuskipti í átt að eingöngu endurnýjanlegri orku, krefjast samantektar um kolefnisspor rafhlaðna og standa gegn öllum gerðum af námugreftri á hafsbotni.
- Setja lög sem krefja fyrirtæki að virða mannréttindi og vernda umhverfið, meðal annars með því að sjá til þess að fyrirtæki hafi eftirlit með birgðakeðju sinni.
- Tryggja að lögum og reglugerðum um umhverfisvernd og mannréttindi sé framfylgt. Hætta þarf að beita hagrænum hvötum fyrir jarðefnaeldsneyti á borð við niðurgreiðslur, skattaívilnun, lán eða afskriftir.
- Rannsaka og taka á málum sem tengjast brotum á mannréttindum og umhverfisvernd.
- Vernda baráttufólk fyrir umhverfisvernd og frumbyggja svo hægt sé að tryggja þátttöku þessara hópa í réttlátum orkuskiptum.
- Tryggja úrræði fyrir samfélög sem finna fyrir afleiðingum námugröfts.
- Refsa fyrir mútur og spillingu námufyrirtækja, bræðsluvera, framleiðenda og annarra fyrirtækja sem græða á orkuskiptum.
- Setja lokafrest á sölu nýrra brunahreyfilsbíla og innleiða stefnu um að draga úr bílferðum, þar á meðal að fækka bílum á vegum.
- Setja lágmarksstaðla fyrir orkuskilvirkni í vörum og farartækjum til að spara rafmagn og auðlindir.
- Setja lágmark á líftíma rafhlaðna fyrir rafmagnsbíla og önnur raftæki.
- Krefjast viðgerða á rafhlöðum eða að þeim sé safnað saman fyrir endurvinnslu og fjárfesta í rannsóknum sem er ætlað að betrumbæta hönnun og endurvinnslu rafhlaðna.
Fyrirtæki
Tilmæli Amnesty International til fyrirtækja:
- Fyrirtæki tryggi að starfsemi þeirra, dótturfyrirtækja og birgðasala fylgi alþjóðlegum stöðlum um umhverfisvernd og mannréttindi. Það felur meðal annars í sér að tryggja mannréttindi með því að sjá til þess að fylgst sé vel með og gripið verði til aðgerða vegna mannréttindabrota og umhverfisáhrifa.
- Fyrirtæki tryggi að starfsemi þeirra þaggi ekki niður í röddum samfélaga sem verða fyrir áhrifum vegna námugröfts, þá sérstaklega frumbyggja og baráttufólks til verndar umhverfinu og mannréttindum. Nauðsynlegt er að hlusta á raddir þessa fólks til að tryggja rétta nálgun.
- Atvinnuveitendur virði réttindi verkafólks í samræmi við alþjóðlega staðla.
- Fyrirtæki geri mannréttindamiðað áhættumat á öryggisaðgerðum. Mútur og spilling mega aldrei eiga sér stað og það þarf að sjá til þess að slíkt líðist ekki.
- Framleiðendur rafhlaðna verða að auka hlutfall endurvinnanlegs efnis í rafhlöðum og hanna rafhlöður sem auðvelt er að taka í sundur fyrir endurvinnslu efnis.
- Allir bílaframleiðendur skipti út brunahreyflum eins fljótt og hægt er.
- Framleiðendur rafhlaðna hafni steinefnum sem koma frá sjávarbotni.
Alþjóðlegir staðlar á borð við leiðbeinandi meginreglur Sameinuðu þjóðanna um viðskipti og mannréttindi (e. UN Guiding Principles on Business and Human Rights) er leiðarvísir um hvað þarf að gera til að virða mannréttindi í starfseminni og hvernig úrræði þarf að veita fyrir þann skaða sem starfsemin veldur eða á þátt í.
Stjórnvöld og fyrirtæki þurfa að tryggja að lausnir í átt að hreinni orku valdi ekki fólki eða umhverfinu skaða.
Meginreglur Amnesty International fyrir fyrirtæki og stjórnvöld.





