Sádi-Arabía: Stöðvum aftöku Essam Ahmed

Hætta er á að egypskur sjómaður, Essam Ahmed, verði tekinn af lífi í Sádi-Arabíu.

Yfirvöld þar í landi handtóku Essam í desember 2021 á fiskibát milli Sádi-Arabíu og Egyptalands. Essam segist hafa verið þvingaður af manni með byssu til að flytja vímuefni. Hann var dæmdur til dauða í nóvember 2022 í kjölfar óréttlátrar málsmeðferðar fyrir dómi. Essam segist hafa verið pyndaður strax eftir handtöku og að hann hafi „játað“ í kjölfarið. Hann hafði engan aðgang að lögfræðingi eftir handtöku á meðan rannsókn á máli hans stóð yfir.  

SMS-félagar krefjast þess að hætt verði við aftöku Essam Ahmed og að hann fái réttláta málsmeðferð.  

Sádi-Arabía verður tafarlaust að koma á opinberu aftökuhléi með það að markmiði að afnema dauðarefsinguna. 

Skráðu þig í SMS-aðgerðanetið hér.

Photo of Essam Ahmed to be used to support First UA: 65/25 (MDE 23/0086/2025).