Íslandsdeildin hélt aðalfund deildarinnar laugardaginn 3. apríl. Fundurinn var haldinn í Litlu-Brekku, fundarsal Lækjarbrekku í Bankastræti.
Fundarstjóri var Steingrímur Gautur Kristjánsson. Kristín J. Kristjánsdóttir gerði á fundinum grein fyrir störfum deildarinnar á liðnu starfsári og reikningar deildarinnar voru lagðir fram. Jóhanna K. Eyjólfsdóttir kynnt alþjóðlegu starfsáætlunina, helstu samþykktir síðasta heimsþings og áætlun deildarinnar. Kosið var í stjórn deildarinnar.
