Almennt námskeið fyrir félaga á vegum Íslandsdeildar Amnesty International

Íslandsdeild Amnesty International vekur athygli á námskeiði sem efnt verður til laugardaginn 14. október á Fosshótel Lind við Rauðarárstíg 18, Reykjavík. Námskeiðið hefst kl. 13 og stendur til kl. 17. Á námskeiðinu verður fjallað um sögu og uppbyggingu Amnesty International, mannréttindaáherslur samtakanna um þessar mundir, og annað sem viðkemur mannréttindastarfi Amnesty International.

Einnig verður fjallað verður um þá aðgerðakosti sem í boði er innan samtakanna. Námskeiðið er góður vettvangur til að hitta aðra Amnesty félaga og mynda tengsl félaga í milli.

Amnesty félagar styðja við bakið á samtökunum á margvíslegan hátt, og framlag hvers og eins skiptir máli. Með því að taka þátt í námskeiðinu færð þú tækifæri til að kynnast betur starfseminni og þeim viðfangsefnum sem við stöndum frammi fyrir í baráttunni fyrir mannréttindum.

Til að geta undirbúið námskeiðið sem best biðjum við fólk að skrá þátttöku sína sem fyrst með því annað hvort að:

senda okkur tölvupóst á netfangið tgj@amnesty.is

hringja á skrifstofu Amnesty International á Íslandi, í síma 511 7905

Námskeiðið er ókeypis og opið öllum félögum í Amnesty International.