Íslandsdeild Amnesty International fagnar víðtækum stuðningi ríkja heims við gerð alþjóðlegs vopnaviðskiptasáttmála sem hefur þann tilgang að styrkja eftirlit með vopnaviðskiptum og koma í veg fyrir ólöglega vopnasölu.
Íslandsdeild Amnesty International fagnar víðtækum stuðningi ríkja heims við gerð alþjóðlegs vopnaviðskiptasáttmála sem hefur þann tilgang að styrkja eftirlit með vopnaviðskiptum og koma í veg fyrir ólöglega vopnasölu. Alþjóðlegur vopnaviðskiptasáttmáli mun tryggja að vopn verði ekki seld til landa þar sem mannréttindabrot eru í hámarki og hætta er á vopnuðum átökum.
Á yfirstandandi allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna greiddu 139 ríki atkvæði með tillögu um gerð alþjóðlegs vopnaviðskiptasáttmála, Bandaríkin voru eina ríkið sem greiddi atkvæði gegn tillögunni.
Í október 2003 hóf Amnesty International í samvinnu við Oxfam og IANSA alþjóðlega herferð sem hefur það að markmiði að gerður verði alþjóðlega bindandi sáttmáli um vopnaviðskipti. Meira en milljón manns í 170 löndum hafa tekið þátt í herferðinni og farið fram á gerð slíks sáttmála og að harðar verið tekið á vopnasölu. Ákvörðun allsherjarþingsins er því mikilvægur áfangi í baráttunni gegn óheftri vopnasölu sem leiðir til fátækar, átaka og mannréttindabrota.
Sjá nánar á www.amnesty.org og www.controlarms.org
