Amnesty International hvetur öll ríki heims til að stöðva pyndingar

Pyndingar verður að stöðva, pyndara verður að sækja til saka og tryggja þarf þolendum skaðabætur.

26. júní var alþjóðlegur dagur Sameinuðu þjóðanna til stuðnings fórnarlömbum pyndinga. Eitt af meginmarkmiðum Amnesty International er að binda endi á pyndingar. Í síðustu ársskýrslu samtakanna komu fram upplýsingar um pyndingar í 81 landi.

Pyndingar verður að stöðva, pyndara verður að sækja til saka og tryggja þarf þolendum skaðabætur. 

Amnesty International hvetur öll ríki heims til að stöðva pyndingar og aðra grimmilega, ómannlega og niðurlægjandi meðferð eða refsingu. Nú eru 21 ár liðin frá því að Samningur Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu gekk í gildi. Amnesty International barðist í áraraðir fyrir gerð samningsins. Mikill meirihluti ríkja heims hefur nú fullgilt samninginn eða 145 ríki auk þess sem önnur átta hafa skrifað undir hann.  

Baráttan gegn pyndingum og annarri illri meðferð á þó enn á brattann að sækja. Víða um heim er fólk pyndað í fangelsum, á lögreglustöðvum, varðhaldsstöðvum, herstöðvum, yfirheyrslubúðum og öðrum stöðum á vegum yfirvalda.  Um allan heim misnota fulltrúar ríkisins vald sitt og pynda varnarlaust fólk.  

Sorglegar staðreyndir um pyndingar koma fram ár eftir ár í ársskýrslum Amnesty International. Í síðustu ársskýrslu samtakanna er að finna upplýsingar frá 81 landi um pyndingar.

Amnesty International krefst þess að öll ríki heims virði hið algjöra bann við pyndingum.

Ríki heimsins verða að taka alþjóðlegar skuldbindingar sínar alvarlega og þau ríki sem enn hafa ekki gerst aðilar að Alþjóðasamning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum ættu að fullgilda hann og virða reglur hans. Þau ríki sem gert hafa fyrirvara við ákvæði samningsins eiga að draga þá til baka og öll ríki skulu heimila eftirlitsfólki fullan aðgang að öllum fangelsum og öðrum stöðum þar sem frelsissviptu fólki er haldið.  Einnig skulu ríki fullgilda viðauka við samninginn sem heimilar einstaklingum að leggja fram kærur til skoðunar hjá eftirlitsnefnd með framfylgd hans.

Þeir sem gerast sekir um pyndingar eiga ekki að komast upp með slíkt athæfi og allir þeir sem koma að þessum skelfilegu glæpum skulu sóttir til saka.