Á hverju ári líða milljónir manna fyrir óábyrg vopnasöluviðskipti, um heim allan. Um eitt þúsund einstaklingar láta lífið af vopna völdum á hverjum degi, og enn fleiri særast eða þurfa að þola pyndingar og illa meðferð af hendi vopnaðra aðila. Afleiðingar þessa á innviði samfélagsins eru jafnframt alvarlegar.
Á hverju ári líða milljónir manna fyrir óábyrg vopnasöluviðskipti, um heim allan. Um eitt þúsund einstaklingar láta lífið af vopna völdum á hverjum degi, og enn fleiri særast eða þurfa að þola pyndingar og illa meðferð af hendi vopnaðra aðila. Afleiðingar þessa á innviði samfélagsins eru jafnframt alvarlegar. Í fjölda landa sligast ekki einungis heilbrigðiskerfið undan álaginu heldur jafnframt efnahagurinn, sérstaklega þar sem hann er bágur fyrir. Gegndarlaus verslun með vopn viðheldur víða fátækt og mismunun.
Stöðva þarf vopnaflæðið
Frá því að herferð Amnesty International, Oxfam og International Action Network on Small Arms (IANSA), Komum böndum á vopnin hófst í október 2003 hafa rúmlega milljón einstaklinga skrifað nafn sitt á undirskriftalista til stuðnings við gerð alþjóðlegs vopnaviðskiptasáttmála.
Sáttmálinn hefur þann tilgang að styrkja eftirlit með vopnaviðskiptum og koma í veg fyrir ólöglega vopnasölu. Nauðsyn á alþjóðlegum vopnaviðskiptasáttmála er brýn, ef koma á í veg fyrir að vopn falli í rangar hendur og stuðli að alvarlegum mannréttindabrotum og brotum á mannúðarlögum.
Samþykkt alþjóðlegs vopnaviðskiptasáttmála mun tryggja að vopn verði ekki seld til landa þar sem mannréttindabrot eru í hámarki og hætta er á vopnuðum átökum.
Í desember 2006 náðist mikilvægur áfangi í herferðinni þegar 153 ríki Sameinuðu þjóðanna greiddu atkvæði með gerð vopnaviðskiptasáttmála. Miklu varðar að halda Sameinuðu þjóðunum við efnið í aðdraganda Allsherjarþingsins í október á þessu ári. Skilaboðin eru þau að heimurinn fylgist með og vaktar vinnu þessara þjóða við gerð sáttmálans.
Þú getur hjálpað með því að styðja herferðina, Komum böndum á vopnin og þrýst á ríki heims að ljúka við gerð vopnaviðskiptasáttmála hið fyrsta.
Taktu þátt með að ýta á hlekkinn hér að neðan!
