Amnesty í Hellinum í kvöld

Amnesty International fagnar 50 ára afmæli í dag 28. maí.  Í tilefni af afmælinu hafa skipuleggjendur tónleika í Hellinum á Hólmaslóð 2 í kvöld og Íslandsdeild Amnesty International tekið höndum saman um SMS AÐGERÐ.

Aðgerðin felst í því að gestum tónleikanna gefst kostur á að senda eitt sms gegn dauðarefsingum.

Þeir sem koma fram á tónleikunum í kvöld eru: Helgi Valur, Arnljótur og Blý. Húsið opnar kl. 20.00

Amnesty International á að baki langt og farsælt samstarf með ýmsu listafólki sem leggur baráttunni fyrir mannréttindum lið með list sinni. Listafólkið kemur úr ólíkum áttum og sameinast í baráttunni fyrir réttlæti, frelsi og mannlegri reisn, eins og milljónir annarra Amnesty félaga. Sá kraftur og sú ástríða sem listafólk hefur lagt í mannréttindabaráttu samtakanna er ómetanleg.