Amnesty International, í samstarfi við Bíó Paradís, stendur fyrir kvikmyndadögum daganna 3.-13. nóvember næstkomandi.
Amnesty International, í samstarfi við Bíó Paradís, stendur fyrir kvikmyndadögum dagana 3.-13. nóvember næstkomandi. Við munum bjóða almenningi í ferðalag, ferðalag sem leiðir til allra heimshorna og veitir innsýn í líf og aðstæður fólks. Sýndar verða tólf ólíkar myndir, hver með sína nálgun á viðfangsefnið.
Í Nero´s Guests fylgjumst við með blaðamanni sem skrifar um fátækt og sjálfsmorðsfaraldur meðal indverskra bænda.
Myndin Pink Saris kynnir baráttu konu gegn ofbeldi og erfðastéttakerfinu á Indlandi.
Silent Snow segir frá ungum Grænlendingi sem leitar orsaka þeirrar mengunar sem ógnar samfélagi inúita.
The Devil Operation er mynd sem á mjög áhrifamikinn hátt segir frá áhrifum námavinnslu á líf bænda í Perú og hvernig námafyrirtæki skirrast ekki við að ógna íbúum.
The Green Wave byggir á Twitter- og bloggfærslum frá Íran í aðdraganda og í kjölfar kosninganna árið 2009, við fáum innsýn í atburðina í gegnum sögu ungs stúdents.
The Jungle Radio leiðir okkur til Níkaragva þar sem við fylgjumst með lífi konu sem rekur útvarpsstöðina Raddir kvenna.
The Mobile Cinema leiðir okkur til Kongó þar sem hópur kvikmyndagerðarfólks ferðast um stríðshrjáð svæði og sýnir íbúum kvikmynd í þeim tilgangi að hafa áhrif á viðhorf fólks til nauðgana.
Í myndinni Budrus kynnumst við tilraunum Palestínumanns til að leiða saman ólíka hópa í friðsamlegri baráttu gegn aðskilnaðarmúrnum sem ógnar afkomu íbúa þorpsins Budrus.
Nowhere in Europe færir okkur sögu fjögurra flóttamanna frá Tsjetsjeníu. Við kynnumst þeim hindrunum sem flóttafólk stendur frammi fyrir í leit sinni að griðastað.
Í myndinni An Independent Mind er tekist á við tjáningarfrelsið, kynntar eru sögur fólks frá ólíkum löndum sem hvert á sinn hátt nýtir þennan grundvallarrétt andspænis ógnandi valdi.
Sisters in Law flytur okkur til Kamerún þar sem við kynnumst systrum sem báðar starfa sem lögfræðingar og fylgjumst með starfi þeirra í þágu kvenna og barna.
Heimildarmyndin Travel Advice for Syria veitir einstaka innsýn í sýrlenskt samfélag í aðdraganda uppreisnarinnar. Að ferðalaginu loknu höfum við kynnst fólki sem þrátt fyrir oft erfiðar aðstæður heldur áfram að krefjast réttar síns til að lifa með reisn.
