Bréf ykkar veittu mér frelsi

Ég er sönnun þess að bréf ykkar bera árangur. Þess vegna bið ég ykkur um að taka þátt í bréfamaraþoni Amnesty International – og veita þeim von, sem búa við mannréttindabrot um heim allan.

 

Ég er sönnun þess að bréf ykkar bera árangur. Þess vegna bið ég ykkur um að taka þátt í bréfamaraþoni Amnesty International – og veita þeim von, sem búa við mannréttindabrot um heim allan.

Ef þú heldur að það sé gamaldags að skrifa bréf og tilgangslaust að setja blek á blað á tímum Facebook og Twitter, skaltu hugsa um sögu mína.

Ég heiti Birtukan Mideksa og bréf ykkar færðu mér frelsi.

ÉG EYGÐI EITT SINN ENGA VON UM FRELSI. Ég er einstæð móðir og fyrrum leiðtogi stjórnarandstöðuflokks í Eþíópíu. Ég var handtekin árið 2005 og dæmd í lífstíðarfangelsi eftir að flokkur minn tók þátt í mótmælum í kjölfar kosninga í landinu.

Ég framdi engan glæp. Ráðist var gegn mér fyrir það eitt að ég tjáði pólitískar skoðanir mínar með friðsamlegum hætti. Í raun er ég heppin að vera á lífi: Öryggissveitir brugðust við mótmælunum með því að drepa 187 manns og særa 765 til viðbótar.

ÞÚ GETUR HJÁLPAÐ TIL VIÐ AÐ FRELSA AÐRA PÓLITÍSKA FANGA EINS OG MIG. TAKTU ÞÁTT Í BRÉFAMARAÞONI AMNESTY – STÆRSTA BRÉFAMARAÞONI Í HEIMI. ÞAR GETURÐU BRUGÐIST VIÐ VEGNA 11 ÁRÍÐANDI MÁLA, SEM ÞURFA Á ATHYGLI OKKAR AÐ HALDA.

Stjórnvöld í Eþíópíu héldu að þau gætu bælt andóf með því að læsa andstæðinga sína inni um ókomna tíð. Ég hafði verið í einangrun í Kaliti-fangelsi svo mánuðum skipti þegar þátttakendur í bréfamaraþoni Amnesty komu mér til hjálpar. Þúsundir einstaklinga kröfðust þess að ég hlyti frelsi.

Bréf ykkar vernduðu mig á versta tímabili ævi minnar. Þið voruð rödd mín þegar rödd mín heyrðist ekki. BRÉF YKKAR HÉLDU VONINNI LIFANDI ÞEGAR NEYÐIN VAR MEST.

Það er Amnesty International að þakka að ég hlaut frelsi í október 2010.

Ég er svo þakklát fyrir bréf ykkar og aðgerðir í mína þágu. Ég hvet ykkur til að halda áfram lífsbjargarverkum ykkar og grípa til aðgerða í þágu annarra. Ég brýni raust mína í þágu Amnesty International og ég vona að þú munir gera hið sama.

SKRIFAÐU MEÐ MÉR. TAKTU ÞÁTT Í BRÉFAMARAÞONINU.

Friðarkveðja,

Birtukan Mideksa

fyrir hönd Amnesty International