Amnesty International er alþjóðleg hreyfing fólks sem berst fyrir því að alþjóðlega viðurkennd mannréttindi séu virt og að allir njóti verndar þeirra. www.amnesty.is
Amnesty International auglýsir stöðu aðgerðafulltrúa í 100% starfshlutfall. Skrifstofan er staðsett í Reykjavík.
Amnesty International er alþjóðleg hreyfing fólks sem berst fyrir því að alþjóðlega viðurkennd mannréttindi séu virt og að allir njóti verndar þeirra. www.amnesty.is
Verk- og ábyrgðarsvið:
Skipulag, samskipti og efling Ungliðahreyfingar Amnesty (ULH)
Samfélagsmiðlar ULH
Kynningar á ULH í framhaldsskólum
Aðgerðir ULH
Gerð fjárhagsáætlunar ULH
Skýrslugerð
Önnur tilfallandi störf
Hæfnis- og menntunarkröfur:
Háskólamenntun eða reynsla sem nýtist í starfi
Mikil skipulagshæfni og sjálfstæði í starfi
Leiðtogahæfileikar
Góð tölvukunnátta
Góð færni í íslensku og ensku
Sveigjanleiki á vinnutíma og hæfni til að vinna með ungu fólki
Áhugi á mannréttindamálum
Við bjóðum
Jákvætt og hvetjandi starfsumhverfi
Sveigjanlegt, skapandi og ábyrgðarfullt starf
Starf, þar sem hæfileikar starfsmanna fá notið sín
Umsóknir skal senda á al@amnesty.is. Umsóknarfrestur er til 2. júní 2014. Umsækjandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Upplýsingar um starfið veitir Anna í gegnum tölvupóst al@amnesty.is.
