Í aðdraganda Heimsmeistarakeppninnar í fótbolta í Brasilíu hafa átt sér stað fjölmenn mótmæli sem lögregluyfirvöld hafa svarað með afli, og í sumum tilvikum beitt táragasi og gúmmíkúlum.
Í aðdraganda Heimsmeistarakeppninnar í fótbolta í Brasilíu hafa átt sér stað fjölmenn mótmæli sem lögregluyfirvöld hafa svarað með afli, og í sumum tilvikum beitt táragasi og gúmmíkúlum.
Líklegt er að mótmælin muni halda áfram á komandi vikum og nú íhugar brasilíska þingið nýja lagasetningu sem kann að vera notuð til þess að stöðva slík mótmæli. Að auki hefur skortur á reglugerðum og þjálfun lögreglu við löggæslu, skapað hættu á frekari meiðslum mótmælenda vegna óhóflegrar valdbeitingar lögreglunnar.
Allir eiga rétt á að taka þátt í friðsamlegum mótmælum – að nýta mannréttindi sín til tjáningar og koma saman með friðsömum hætti - og brasilíska ríkisstjórnin hefur skyldu til að tryggja þessi réttindi.
Þess vegna gefur Amnesty International brasilísku ríkisstjórninni gult spjald!
Horfa á myndband Amnesty International.
