Óskar Le Qui Khuu Júlíusson ætlar að hlaupa 10 kílómetra í Reykjavíkurmaraþoninu 19. ágúst og safna áheitum fyrir Amnesty International.
Netákalls- og SMS aðgerðanetsfélaginn Óskar Le Qui
Khuu Júlíusson er 18 ára MHingur og einn þeirra sem ætlar að hlaupa til
styrktar Amnesty International í Reykjavíkurmaraþoninu eftir rúma viku. Óskar velur að hlaupa fyrir Amnesty International af einfaldri ástæðu, „Í skólanum er mikið verið að tala um mannréttindi og þess vegna
er ég meira meðvitaður um það sem er í gangi í heiminum. Og það var það eina
sem kom til greina af því margir vinir mínir í MH eru í sjálboðaliðastarfi og
hjálpa til hjá Amnesty International.“ Þá fluttust foreldrar Óskars til Íslands frá Víetnam til að skapa sér betra líf og það tengist auðvitað mannréttindum
á einn og annan hátt.
Óskar er að eigin sögn mikill hlaupari. Hann hefur
æft fótbolta og þar af leiðandi vanur hlaupum enda þurfi fótboltamenn oft að hlaupa marga kílómetra í hverjum leik. Einnig stundar hann alhliða
líkamsrækt. Þetta er hins vegar í fyrsta skipti sem hann tekur þátt í
Reykjavíkurmaraþoninu og hann ætlar að hlaupa 10 kílómetra. „Markmiðið er að
reyna að ná klukkutímanum og slá met bróður míns,“ segir Óskar. „Hann ætlar að
hlaupa líka en ég held að hann sé ekki að hlaupa fyrir neitt félag. ‚Ég gæti
þurft að tala við hann um það.“ Þá segist Óskar vera að hvetja fólk í kringum
sig til að taka þátt og telur sig vera búinn að sannfæra fimm. „En ég veit ekki
hvort þau muni standa við orð sín,“ segir hann.Óskar hvetur alla sem hann þekkir til að taka þátt,
vera með og hlaupa til góðs og skorar sérstaklega á alla MH-inga að hlaupa
fyrir Amnesty International. „Það er leiðinlegt hvernig ástandið er víða í
heiminum og það er alltaf gott að hjálpa til,“ segir hann að lokum.
Við
hjá Íslandsdeild Amnesty International skorum á alla MHinga, unga sem aldna, að
heita á Óskar og styðja þannig við mannréttindabaráttuna. Hægt er að heita á
Óskar og aðra Amnesty-hlaupara hér.
