Viltu vinna að betri heimi? Íslandsdeild Amnesty International leitar að sumarstarfsfólki til að sinna fjáröflunar- og kynningarstarfi fyrir samtökin í sumar.
Mannréttindasamtökin Amnesty International leita að starfsfólki til að sinna fjáröflunar- og kynningarstarfi fyrir
samtökin í sumar. Starfið felst í því að kynna starfsemi Amnesty
International og bjóða fólki að gerast félagar. Oftast er unnið utandyra og vinnutími er frá 11 – 18. Hæfniskröfur:Mjög góð samskiptahæfni og framkoma.Samviskusemi
og áreiðanleiki.Reynsla
af sölumennsku er kostur.Áhugi
á mannréttindum er kostur.Einnig leitum við að verkefnastjóra yfir sumarstarfinu. Verk- og ábyrgðarsvið:• Skipulagning og yfirumsjón með starfi götukynna• Dagleg samskipti og stuðningur við götukynna• Skráningar og uppgjör• Önnur tilfallandi störfHæfniskröfur• Menntun sem nýtist eða reynsla af sambærilegum störfum• Mikil skipulagshæfni og sjálfstæði í starfi• Reynsla og þekking á sölu- og markaðsmálum er kostur• Góð tölvukunnátta• Mjög góð færni í íslensku og ensku• Hæfni í mannlegum samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni• Brennandi áhugi á mannréttindum Upplýsingar gefur Sonja Huld Guðjónsdóttir, fjáröflunarstjóri á shg@amnesty.is.
