Bréf til bjargar lífi 2018

Nú styttist óðum í hið árlega Bréf til bjargar lífi árið 2018. Að venju tekur fjöldi sveitafélaga þátt, bæði á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni. Dagskráin verður auglýst í Fréttablaði samtakanna og á vef Íslandsdeildarinnar.
Bréf til bjargar lífi fer fram á skrifstofu Íslandsdeildarinnar, sunnudaginn 9. desember frá kl. 13-17.

Nú styttist óðum í hið árlega Bréf til bjargar lífi árið 2018. Að venju tekur fjöldi sveitafélaga þátt, bæði á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni. Dagskráin verður auglýst í Fréttablaði samtakanna og á vef Íslandsdeildarinnar.

Öll málin tíu sem tekin verða fyrir í ár lúta að baráttukonum fyrir mannréttindum.

Um heim allan eru konur í fararbroddi andófsfólks. Þær standa í fremstu víglínu, berjast gegn mismunun, þvinguðum brottflutningi, kúgun. Staða þeirra sem leiðtoga í samfélögum sínum er enn merkilegri vegna erfiðleika sem varðað hafa vegferð þeirra. Margar kvennanna búa í samfélögum þar sem konum er ætlað að þola óréttlæti án þess að rödd þeirra heyrist. Jæja, þessar konur eru á öðru máli. Í ár helgar Amnesty International árlega herferð sína, Bréf til bjargar lífi, konum frá tíu löndum sem berjast gegn óréttlátum lögum, spillingu, lögregluofbeldi og mörgu fleira. Þær eru leiðtogar og við þurfum á fleiri eins og þeim að halda nú á dögum, þegar heimurinn færist sífellt í átt til öfga. Með því að slást í hóp þeirra geturðu lagt þitt lóð á vogarskálar jafnréttis, frelsis og réttlætis. Þessar konur og milljónir til viðbótar standa í dag gegn óréttlæti. Stattu með þeim.

Bréf til bjargar lífi fer fram á skrifstofu Íslandsdeildarinnar, Þingholtsstræti 27, þriðju hæð, sunnudaginn 9. desember frá kl. 13-17.

Sérstök dagskrá verður fyrir fjölskylduna á skrifstofunni:
  • Lalli töframaður skemmtir börnum og fullorðnum
  • Jólasveinn kíkir í heimsókn með glaðning fyrir börnin
  • Hljómsveitin Eva flytur hugljúfa tóna í anda jólanna
  • Barnahorn með litum og blöðum svo börnin geti teiknað kveðjur til þolenda mannréttindabrota

Boðið verður upp á kaffi, jólaöl, jólaglögg, smákökur og fleira.

Allir velkomnir!