Amnesty International hefur fengið góðar fréttir
frá Íran! Salar Shadizadi, sem handtekinn var undir lögaldri og var á
dauðadeild í 10 ár, hefur verið leystur úr haldi
Amnesty
International hefur fengið góðar fréttir frá Íran! Salar Shadizadi, sem handtekinn
var undir lögaldri og var á dauðadeild í 10 ár, hefur verið leystur úr haldi.
Amnesty International hefur barist fyrir máli hans síðan í júlí 2015.Salar
Shadizad hefur beðið aftöku í áratug vegna morðs sem átti sér stað þegar hann
var fimmtán ára. Shadizadi sagði að hann hefði verið pyndaður og sætt illri
meðferð. Bæði við handtöku og við rannsókn málsins. Þá hafði hann ekki aðgang
að lögfræðingi fyrr en mál hans fór fyrir dómstóla í Íran. Í desember 2007 var
hann dæmdur til dauða af sakadómi í Gilan-héraði fyrir að stinga æskuvin sinn
til bana. Hæstiréttur staðfesti dóminn . Mál Shadizadi var síðan tekið upp að
nýju í byrjun ársins 2016 eftir alþjóðleg mótmæli. Hann var dæmdur til dauða á
ný í nóvember 2016.Í
kjölfar langra og strangra herferða í forystu Amnesty International, voru allar
yfirvofandi aftökur hans stöðvaðar, oft á síðustu stundu. Í febrúar 2017
samþykkti fjölskylda hins látna að Salar Shadizadi yrði veitt náðun gegn bótum.
Hann var leystur úr haldi 25. apríl úr Rasht-fangelsinu í Gilan-héraðinu í norðurhluta
Íran eftir að hafa verið í tíu ár í fangelsi.
