Aðalfundur Íslandsdeildar Amnesty International 2023

Aðal­fundur Íslandsdeildar Amnesty Internati­onal verður haldinn þriðjudaginn 21. mars 2023 kl. 17:00 í húsnæði deild­ar­innar, Þing­holts­stræti 27, 101 Reykjavík, 3. hæð.

Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf, m.a.:

  • Skýrsla stjórnar um liðið starfsár kynnt
  • Starfsáætlun fyrir komandi starfsár lögð fram
  • Skýrsla stjórnar um fjárhag deildarinnar og fjárhagsáætlun
  • Ársreikningar lagðir fram til samþykktar
  • Kosning stjórnar og félagskjörinna skoðunarmanna
  • Ákvörðun um upphæð árgjalds
  • Lagabreytingatillögur
  • Önnur mál

Íslands­deild hvetur alla áhuga­sama um mann­rétt­indi til að bjóða sig fram í stjórn samtak­anna.

Spurningum varðandi kosningu og stjórnarsetu skal beint til Evu Einarsdóttir, formanns Íslandsdeildar Amnesty International á netfangið eva@amnesty.is.