Alþjóðleg herferð: Let Children live

Börn á Gaza og Vesturbakkanum alast upp við óbærilegar aðstæður. Ofbeldið eykst og verður æ hræðilegra á meðan heimurinn horfir á og vonin dvínar. Frá því að hópmorðið hófst á Gaza höfum við reglulega fengið hryllilegar fréttir um þau fjölmörgu börn sem hafa verið drepin. Alþjóðlega herferðin Let Children Live snýr að baráttu fyrir þau börn sem eru enn á lífi. Herferðin er unnin í samstarfi Amnesty International við Barnaheill (Save the Children).

Minnum á hvað er að veði: Líf 2,38 milljóna barna sem eru enn á lífi á hernumda svæðinu í Palestínu. Fyrir herferðina fengum við í hendur lista yfir nöfn 1,2 milljóna þessara barna. Markmið okkar er að vekja vonina á ný. Við neitum að láta þessi börn verða að tölfræði. Við höldum nöfnum þeirra á lofti og krefjumst aðgerða. Kröfur okkar eru skýrar: Ísrael þarf að hætta að drepa, skaða og svelta palestínsk börn, aflétta herkví á Gaza og binda enda á ólögmætt hernám.

Höldum nöfnum barna á lofti

Vefsíðan Let Children Live fór í loftið þann 28. ágúst. Þar er hægt að skrá sig til að fá nafni barns úthlutað. Þú færð fyrsta nafn og aldur palestínsks barns. Það gæti verið Omar 6 ára, Samira 9 ára og Leen 12 ára. Þitt hlutverk er að deila nafninu sem víðast til að minna á réttinn til lífs. Haltu nafninu á lofti með því að dreifa því á samfélagsmiðlum, úti á götu eða í þínu samfélagi.

Markmiðið er að minna á nöfn þessara 1,2 milljóna barna. Til að ná því þurfum við á sem flestum að halda. Taktu þátt og fáðu fleiri með þér.

Hápunktur alþjóðlegu herferðarinnar verður 13. september, daginn sem allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna hefur sett lokafrest fyrir Ísrael til að binda enda á hernámið í Palestínu.

Fjöldafundur

Á Íslandi fær fólk einnig tækifæri til að taka þátt í herferðinni laugardaginn 6. september á fjöldafundinum ÞJÓÐ GEGN ÞJÓÐARMORÐI sem haldinn verður á Austurvelli.

Þjóð gegn þjóðarmorði 

Staðsetning: Austurvöllur í Reykjavík

Tímasetning: Laugardagurinn 6. september kl. 14-16

Að baki fjöldafundinum standa fjölmörg samtök og félög. Á meðal þeirra er Íslandsdeild Amnesty International ásamt verkalýðsfélögum, mannúðarsamtökum, fagfélögum og öðrum samtökum. Tilgangur fundarins er að krefjast tafarlausra og markvissra aðgerða íslenskra stjórnvalda til að bregðast við  hörmungunum á Gaza.

Íslandsdeild Amnesty International og Barnaheill verða á staðnum til að vekja athygli á herferðinni Let Children Live. Við verðum með tjald þar sem hægt verður að fá nafn barns til að skrifa á skilti og halda á lofti á fundinum, til áminningar fyrir leiðtoga heimsins um að gleyma ekki þessum börnum. Á bak við hvert nafn er barn sem er enn á lífi.

Ef þú skráir þig á vefsíðunni fyrir fjöldafundinn getur þú mætt í tjaldið til okkar og sýnt nafnið sem þér var úthlutað, og fengið hjá okkur spjald svo þú getir haldið nafninu á lofti á fundinum Þjóð gegn þjóðarmorði.

Við hvetjum ykkur öll til að mæta á þennan mikilvæga fund til að sýna afstöðu gegn hópmorðinu á Gaza og hjálpa okkur að halda á lofti nöfnum barna á hernumda svæðinu í Palestínu.

Þátttökufélög

AFL Starfsgreinafélag

Aflið – samtök fyrir þolendur ofbeldis

Aldan – stéttarfélag

Alþýðusamband Íslands (ASÍ)

Amnesty International

AMSIS

Arkitektafélag Íslands

Ásatrúarfélagið

Alþýðusamband Íslands (ASÍ)

ASÍ-UNG

Babúska Media

Bandalag íslenskra listamanna

Bandalag þýðenda og túlka

Barnaheill

Blakdeild Vestra

BHM

Blekfjelagið

BSRB

Byggiðn

Courage International

Danshöfundafélag Íslands

DíaMat – félag um díalektíska efnishyggju

Dögun – Ungir Sósíalistar á Akureyri

Druslugangan

Dýrið – Félag um réttinn til að mótmæla

Efling stéttarfélag

Eining-Iðja

ERGI – Félag Hinsegin Stúdenta á Norðurlandi / The Northern Queer Student Community

Fagdeild geðhjúkrunarfræðinga

Feminísk fjármál

FÍL – Félag íslenskra listamanna í sviðslistum og kvikmyndum

FLB – Félag leikmynda- og búningahöfunda

Flugfreyjufélag Íslands

Félag áhugamanna um heimspeki

Félag Geislafræðinga

Félag leikskólakennara

Félag leikstjóra á Íslandi

Félag framhaldsskólakennara

Félag fornleifafræðinga

Félag iðn- og tæknigreina

Félag íslenskra listdansara

Félag íslenskra rafvirkja

Félag íslenskra safna og safnafólks

Félag íslenskra tónlistarmanna

Félag kennara og stjórnenda í tónlistarskólum

Félag kvikmyndagerðarmanna

Félag kynjafræðikennara

Félag leikskálda og handritshöfunda

Félag prestvígðra kvenna

Félag sjúkraþjálfara

Félag stjórnenda leikskóla

Félag starfsmanna stjórnarráðsins

Félag stjórnenda í framhaldsskólum

Félag tæknifólks

Félag verslunar- og skrifstofufólks Akureyri og nágrenni

Félag þjóðfræðinga

Félagið Ísland-Palestína

Félag íslenskra kvikmyndatökustjóra

Félagsráðgjafafélag Íslands

Framsýn stéttarfélag

FRS – Félag Rafiðnaðarmanna á Suðurlandi

Fríkirkjan í Reykjavík

FTA, FY

FTT – Félag tónskálda og textahöfunda

Grafía

Hagsmunasamtök brotaþola

Hagþenkir, félag höfunda fræðirita og kennslugagna

Háskólafólk á Norðurlandi fyrir Palestínu

Háskólafólk fyrir Palestínu

Hið íslenska náttúrufræðifélag

Hugarafl

Iðjuþjálfafélag Íslands

IWW Ísland – Heimssamband verkafólks á Íslandi2

Íslandsdeild ICOM, Alþjóðaráðs safna

JKFÍ

Kennarasamband Íslands

Kling og Bang

Kjölur stéttarfélag

Kvenfélagasamband Íslands

Kvennahreyfing Samfylkingarinnar

Kvenréttindafélag Íslands

Landssamband lögreglumanna

Landvernd

Listasafn ASÍ

Listasafn Íslands

Listasafn Reykjavíkur

Læti! /Stelpur rokka!

Læknafélag Íslands

Mannfræðifélag Íslands

MATVÍS

Menningarfélagið Tjarnarbíó

MFÍK – Menningar- og friðarsamtök íslenskra kvenna

Náttúrugrið

Náttúruverndarsamtök Íslands

No Borders Iceland

Nýlistasafnið // The Living Art Museum

Ofbeldisforvarnaskólinn

Palestínuverkefnið við Háskóla Íslands

Póstmannafélag Íslands

The Pigeon International Film Festival

Rafniðnaðarfélag Norðurlands

Rafiðnaðarsamband Íslands

Rannsóknastofnun í jafnréttisfræðum (RIKK)

Reykjavíkur Akademían

Rithöfundasamband Íslands

ROÐI – Ungir Sósíalistar

Rótin, félagasamtök

Röskva

​​Sagnfræðingafélag Íslands

Sameyki

Samfylkingarfélagið í Reykjavík

Samtök Grænkera á Íslandi

Samtök hernaðarandstæðinga

Samtök kvikmyndaleikstjóra

Samtökin 78

Samtök um dýravelferð á Íslandi

Samtök um Kvennaathvarf

Sálfræðingafélag Íslands

Siðmennt, félag siðrænna húmanista á Íslandi

SÍUNG

Sjómannafélag Eyjafjarðar

Skerpa

Skólastjórafélag Íslands

Sniðgönguhreyfingin fyrir Palestínu – BDS Ísland

Solaris Hjálparsamtök

Soroptimistaklúbbur Austurlands

Starfsmannafélag Kópavogs

Stéttarfélag Vesturlands

Stígamót

Stjórnarskrárfélagið

Stúdentar fyrir Palestínu

SUNN samtök um náttúruvernd á Norðurlandi

Stúdentafélag Háskólans á Akureyri

Teiknistofan Óðinstorgi

Trans Ísland

Töfrateymið

Ung vinstri græn

Ungt Jafnaðarfólk

Ungmenni – Skólaverkfall fyrir Palestínu

Ungir umhverfissinnar

Ungmennaráð Unicef

Vatn er líf, áhugamannafélag.

Verkalýðsfélagið Hlíf

Verkalýðsfélag Grindavíkur

Viska

Vitund – Samtök gegn kynbundnu ofbeldi

VLFS

VM Félag vélstjóra og málmtæknimanna

Vorstjarnan

Vonarbrú

VR

VSFK

WIFT Íslandi (Women in film and television)

W.O.M.E.N. Samtök kvenna af erlendum uppruna á Íslandi.

Vitund – samtök gegn ofbeldi

Þingiðn

Þjóðkirkjan

Þroskahjálp

Þroskaþjálfafélag Íslands

ÖBÍ réttindasamtök