Einn liður í aðgerðaviku Íslandsdeildar Amnesty International sem stendur frá 12. til 17. október er sýning myndarinnar; The End of Poverty? Think again.
Einn liður í aðgerðaviku Íslandsdeildar Amnesty International sem stendur frá 12. til 17. október er sýning myndarinnar; The End of Poverty? Think again. Sýningin fer fram fimmtudagskvöldið 15.október næstkomandi í húsakynnum deildarinnar að Þingholtsstræti 27, þriðju hæð og hefst klukkan 20:00.
Aðgangur ókeypis og allir velkomnir.
Leikstjóri myndarinnar er Phillipe Diaz en leikarinn Martin Sheen er söguskýrandi. Nóbelverðlaunahafarnir Joseph Stiglitz og Amartya Sen eru meðal þeirra sem fram koma í myndinni, ásamt fjölda annarra einstaklinga. John Perkins sem starfaði sem „efnahagslegur málaliði“ (Economic hitman) hjá stóru ráðgjafafyrirtæki í Bandaríkjunum og hélt fyrirlestur fyrir fullum sal á málþinginu Er allt uppi á borðinu? sem Háskóli Íslands stóð fyrir í apríl síðastliðinn, kemur einnig fram í myndinni. Þetta er margverðlaunuð mynd og hlaut meðal annars fyrstu verðlaun gagnrýnenda á Cannes kvikmyndahátíðinni árið 2008.
Kvikmyndin, The End of Poverty? Think again leitar skýringa á orsökum fátæktar í heiminum eins og hún blasir við okkur í dag.
Sýnishorn úr myndinni á YouTube
