Amnesty International afhenti bandaríska sendiráðinu undirskriftir hátt í 3600 einstaklinga

Magnús Davíð Norðdahl formaður Íslandsdeildar Amnesty International og Anna Lúðvíksdóttir framkvæmdastjóri deildarinnar afhentu í dag fulltrúum bandaríska sendiráðsins 3581 undirskrift einstaklinga sem krefjast þess að Bandaríkin felli niður ákærur á hendur Julian Assange en hann er í haldi í Bretlandi á grundvelli framsalsbeiðni Bandaríkjanna.

Julian Assange gæti átt á hættu varð­haldsvist við aðstæður sem teljast til pynd­inga og annarrar illrar meðferðar, t.d. einangrunarvist. Í ljósi háværrar opin­berrar umræðu embætt­is­fólks í efstu lögum stjórn­sýsl­unnar gegn honum er mikil hætta á ósann­gjörnum rétt­ar­höldum sem grefur alvar­lega undan rétti Julian Assange til að vera álitinn saklaus uns sekt er sönnuð.

Julian Assange birti trúnaðargögn í tengslum við störf sín hjá Wikileaks. Slík birting á ekki að vera refisverð og svipar til starfa fjölmiðlafólks sem reglulega rannsakar mál í starfi sínu. Þessar ákærur gætu haft hrollvekjandi afleiðingar fyrir tjáningarfrelsið og leitt til þess að fjölmiðlafólk ritskoði sjálft sig af ótta við málsókn.

Lestu nánar um málið hér.

Undirskriftir í máli Julian Assange afhentar bandaríska sendiráðinu