Áskorun til íslenskra stjórnvalda

Íslandsdeild Amnesty International fordæmir harkalega og ómannúðlega framkomu íslenskra stjórnvalda í garð barna á flótta. Á síðustu árum hafa ítrekað komið upp mál þar sem til hefur staðið að vísa börnum úr landi sem hafa dvalið hér í lengri tíma og náð að skjóta rótum og aðlagast íslensku samfélagi.

Framferði íslenskra stjórnvalda er andstætt samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins en samkvæmt samningnum ber stjórnvöldum að tryggja að hagsmunir barna hafi forgang þegar gripið er til ráðstafana sem varða börn:

„Það sem barni er fyrir bestu skal ávallt hafa forgang þegar félagsmálastofnanir á vegum hins opinbera eða einkaaðila, dómstólar, stjórnvöld eða löggjafarstofnanir gera ráðstafanir sem varða börn.”

Umræddur samningur var lögfestur hér á landi árið 2013.

Stjórn Íslandsdeildar Amnesty International skorar á íslensk stjórnvöld að hlúa betur að börnum á flótta og grípa þegar í stað til ráðstafana sem tryggja að mannréttindi allra barna sem dvelja á yfirráðasvæði íslenska ríkisins séu virt.