Á vegum okkar eru nú rannsóknanefndir annars vegar í Líbanon og hins vegar í Norður-Ísrael. Á slóðinni http://amnestylebanonisrael.blogspot.com/ er hægt að fylgjast með ferðinni og fyrstu niðurstöðum.
Á vegum okkar eru nú rannsóknanefndir annars vegar í Líbanon og hins vegar í Norður-Ísrael. Á slóðinni http://amnestylebanonisrael.blogspot.com/ er hægt að fylgjast með ferðinni og fyrstu niðurstöðum.
Íslandsdeildin hefur skrifað bréf til utanríkisráðherra og farið fram á að ríkisstjórnin beiti sér fyrir því að Öryggisráð S.þ. taki mið af kröfum Amnesty International sem eru:
Komið verði á vopnahléi tafarlaust og mannúðaraðstoð og vernd óbreyttra borgara verði tryggð.
Stríðandi aðilar fari að mannúðarlögum.
Öll vopnasala til stríðandi aðila verði stöðvuð nú þegar.
Fram fari óháð rannsókn á stríðsglæpum og öðrum brotum á alþjóðlegum mannúðarlögum.
Óbreyttir borgarar hafa verið skotmörk ísraelska hersins í Líbanon og skotmörk Hizbullah í norðurhluta Ísrael. Mannfall í átökunum er orðið gífurlegt og flestir hinna föllnu eru óbreyttir borgarar. Átökin hafa nú staðið í tæpan mánuð. Fyrir sprengjum og flugskeytum verða almennir borgarar, hjálparstarfsmenn, sjúkraflutningabílar, vegir sem flóttafólk notar til að komast á brott, rafstöðvar og önnur borgaraleg mannvirki. Árásirnar eru gróf brot á mannúðarlögum og teljast stríðsglæpir.
Eingöngu tafarlaust vopnahlé getur verndað almenna borgara í Líbanon og Ísrael, þar sem kröfur til stríðandi aðila um að fara að mannúðarlögum hafa enn engin áhrif haft.
Félagar eru hvattir til að fylgjast með aðgerðabeiðnum samtakanna á slóðinni http://web.amnesty.org/pages/lebanonisrael-index-eng
