Áttu orð aflögu?

Taktu þátt í alþjóðlegu bréfamaraþoni Amnesty International og skrifaðu undir kort í þágu þolenda mannréttindabrota á aðventunni. Tilbúin bréf til stjórnvalda á staðnum.

Taktu þátt í stærsta mannréttindaviðburði heims með því að taka þátt í bréfamaraþoninu ! Tugþúsundir í yfir 60 löndum munu nú um helgina þrýsta á stjórnvöld víða um heim í þágu einstaklinga sem sæta mannréttindabrotum. Búist er við að hundruð þúsunda bréfa verði send sem verulega eykur þrýsting á stjórnvöld að tryggja mannréttindi þeirra einstaklinga sem mátt hafa þola mannréttindabrot..

Þetta er í sjötta sinn sem bréfamaraþonið er haldið á Íslandi en í fyrra sendum við hundruð jólakorta til þolenda mannréttindabrota um heim allan. Samtímis munu fara fram bréfamaraþon í Amnesty-deildum í yfir 60 löndum víða um heim.

Um stærsta mannréttindaviðburð veraldar er að ræða.

http://www.amnesty.ca/writeathon/?page_id=16

 

Bréfamaraþonið fer fram um land allt í kringum 10. desember í tilefni af alþjóðlegum mannréttindadegi Sameinuðu þjóðanna þann 10. desember. Í ár stendur til að hafa bréfamaraþon í Reykjavík, Kópavogi, Hafnarfirði, Reykjanesbæ, Grindavík, á Akranesi, Selfossi, Akureyri, Egilsstöðum, Ísafirði, Húsavík, og í Höfn í Hornafirði.

Við viljum biðja þig um að gefa eina til tvær klukkustundir af tíma þínum í þágu þolenda mannréttindabrota á þeim stöðum sem næst þér eru og auglýstir eru hér að neðan.

Þeir, sem ekki hafa tök á að mæta á bréfamaraþon Amnesty International, geta tekið þátt á Facebook (sjá nánar: http://www.facebook.com/pages/Islandsdeild-Amnesty-International/55649180171?v=app_4949752878&ref=ts )

 

Undanfarin ár hefur myndast skemmtileg jólastemning, en kaffi, kakó og piparkökur verða að sjálfsögðu á boðstólnum.

Bréfamaraþonið verður í ár haldið á eftirfarandi stöðum:

Reykjavík

Skrifstofa Íslandsdeildar Amnesty International: Íslandsdeild Amnesty International hvetur alla til að mæta, leggja hönd á plóginn og njóta notalegrar jólastemningar á aðventunni laugardaginn 12. desember frá 13 til 18 að Þingholtsstræti 27, þriðju hæð.

Reykjavík Miðbær, á Borgarbókasafni Reykjavíkur laugardaginn 12. desember frá 13 til 17.

Reykjavík Grafarvogur, á Foldasafni laugardaginn 12.desember frá 13 til 17.

Reykjavík Gerðuberg, á Gerðubergssafni laugardaginn 12. desember frá 13 til 16.

Hafnarfjörður, á Bókasafninu í Hafnarfirði laugardaginn 12.desember frá 11 til 15.

Kópavogur, á Bókasafni Kópavogs laugardaginn 12. desember frá 13 til 17.

Ísafjörður, í Edinborgarhúsinu laugardaginn 12.desember frá 14 til 16.

Höfn í Hornafirði, í Bókasafninu í Nýheimum frá 10 til 14.

Egilsstaðir, á Jólakettinum í Barra laugardaginn 12.desember frá 13 til 16.

Akureyri, á Amtsbókabókasafninu laugardaginn 12. desember frá 13 til 18.

Akranes, á Bókasafni Akraness föstudaginn 11. desember frá 12 til 18.

Reykjanesbær, á bókasafninu í Reykjanesbæ laugardaginn 12. desember frá 10 til 16.

Grindavík, á Bókasafninu í Grindavík 10. og 11.desember frá 11 til 18.

Selfoss, á Bókasafninu á Selfossi 10. og 11.desember frá 10 til 19 og laugardaginn 12. desember frá 11 til 14.

Húsavík, á Bókasafni Húsavíkur þriðjudaginn 15. desember frá 10 til 18.