Bandarísk yfirvöld verða að fella niður allar ákærur á hendur Julian Assange sem tengjast njósnum og birtingu gagna vegna starfa hans hjá Wikileaks. Miskunnarlausar tilraunir bandarískra stjórnvalda til að hafa hendur í hári Julian Assange vegna opinberunar gagna sem innihéldu meðal annars upplýsingar um mögulega stríðsglæpi bandaríska hersins eru alvarlegar árásir gegn réttinum til tjáningarfrelsis.
Skráðu þig í sms-aðgerðanetið hér! Sendu svo AKALL í númerið 1900 til að skrifa undir málið.
Julian Assange er í haldi í Belmarsh-öryggisfangelsinu í Bretlandi á grundvelli framsalsbeiðni Bandaríkjanna. Amnesty International leggst alfarið gegn því að Julian Assange verði framseldur eða fluttur með einum eða öðrum hætti til Bandaríkjanna. Julian Assange gæti átt á hættu varðhaldsvist við aðstæður sem teljast til pyndinga og annarrar illrar meðferðar, t.d. einangrunarvist. Í ljósi háværrar opinberrar umræðu embættisfólks í efstu lögum stjórnsýslunnar gegn honum er mikil hætta á ósanngjörnum réttarhöldum sem grefur alvarlega undan rétti Julian Assange til að vera álitinn saklaus uns sekt er sönnuð.
Krefstu þess að bandarísk stjórnvöld felli niður ákærur á hendur Julian Assange sem tengjast eingöngu birtingu gagna á Wikileaks.
Julian Assange birti trúnaðargögn í tengslum við störf sín hjá Wikileaks. Slík birting á ekki að vera refsiverð og svipar til starfa fjölmiðlafólks sem reglulega rannsakar mál í starfi sínu. Þessar ákærur gætu haft hrollvekjandi afleiðingar fyrir tjáningarfrelsið og leitt til þess að fjölmiðlafólk ritskoði sjálft sig af ótta við málsókn.
Verndum tjáningarfrelsið!
Lestu meira um málið hér
