Bandaríkin: Þriggja ára barn leyst úr haldi

Það markaði tímamót 
þegar úrskurðað var að hinn þriggja ára gamli Josué* skyldi leysa úr
haldi úr Berks County Residential Center í Pennsylvaníu í síðustu viku. Hann flúði
frá Hondúras með tæplega þrítugri móður sinni vegna hótana um mannrán og
líkamlega og kynferðislega árás. Þau sóttu síðan um hæli í Bandaríkjunum og hafa
verið í haldi í Berks í rúma 16 mánuði. 

Það markaði tímamót 
þegar úrskurðað var að hinn þriggja ára gamli Josué* skyldi leysa úr
haldi úr Berks County Residential Center í Pennsylvaníu í síðustu viku. Hann flúði
frá Hondúras með tæplega þrítugri móður sinni vegna hótana um mannrán og
líkamlega og kynferðislega árás. Þau sóttu síðan um hæli í Bandaríkjunum og hafa
verið í haldi í Berks í rúma 16 mánuði. Josué hefur eytt næstum hálfri ævi
sinni í haldi og lærði að tala og ganga í fangavist.Amnesty International í Bandaríkjunum hóf herferð í
júní til að enda varðhald barna og foreldra þeirra í haldi í varðhaldsmiðstöð
fyrir fjölskyldur eins og Berks County Residential Center. Um þessar mundir eru
fjölmörg börn og foreldrar þeirra í haldi í Berks sem er ein af þremur
varðhaldsmiðstöðvum fyrir fjölskyldur í Bandaríkjunum og svipar til fangelsis.  Að minnsta kosti þrjár aðrar fjölskyldur í
Berks hafa verið þar í haldi lengur en 600 daga.„Ákvörðunin um lausnina er fagnaðarefni en aðeins
tímabundinn léttir fyrir Josué og móður hans. Við munum halda áfram að tryggja
að fólk sem leitar sér hælis fái réttláta málsmeðferð og mannúðlega meðferð,“
sagði Eric Ferrero, aðstoðarframkvæmdastjóri Bandaríkjadeildar Amnesty International.  „Fjölskyldurnar sem eru í haldi í Berks hafa flúið
hrikalegt ofbeldi í heimalandi sínu til þess eins að vera sett bak við lás og
slá í Bandaríkjunum. Þessi glórulausa fangelsun stríðir gegn gildum um
jafnrétti og virðingu í landinu.  Innflytjenda- og tollgæslan þarf að leysa úr
haldi allar fjölskyldur og heimavarnarráðuneyti Bandaríkjanna verður í eitt
skipti fyrir öll að loka öllum varðhaldsmiðstöðvum fyrir fjölskyldur eins og
Berks.“Margar af fjölskyldunum í Berks koma frá svæði sem er
kallað norður-þríhyrningurinn í Mið-Ameríku, þar sem löndin El Salvador,
Gvatemala og Hondúras eru. Þetta svæði er þekkt fyrir gífurlegt ofbeldi og
óöryggi eins og Amnesty International hefur ítrekað skjalfest.  *Ekki hans rétta nafn