Bandaríkin: Verndið réttinn til þungunarrofs

Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur snúið við fordæmi dóms sem verndaði réttinn til þungunarrofs í landinu. Krefjumst þess að ríkisstjórar í öllum ríkjum Bandaríkjanna komi í veg fyrir þungunarrofsbann og verndi réttinn til þungunarrofs. 

Dómur hæstaréttar leiðir til þess að ríki Bandaríkjanna ráða því sjálf hvort þau leyfi þungunarrof eða ekki. Fleiri en helmingur ríkja í landinu, 26 ríki, hafa nú þegar lagt bann á þungunarrof.

Það er á hreinu að dómurinn er mikil afturför í mannréttindabaráttunni. 

Aðgengi að þungunarrofi eru mannréttindi. Samkvæmt alþjóðlegum mannréttindalögum hafa allir rétt á að lifa, rétt á heilsu og rétt á að lifa frjálsir gegn ofbeldi, mismunun, pyndingum eða annarri illri meðferð. Það er brot á þessum réttindum að neyða einstaklinga til að halda áfram meðgöngu gegn vilja þeirra, hver sem ástæðan er.  

Þungunarrof verður að vera löglegt, öruggt og aðgengilegt fyrir alla. Annars staðar í heiminum, þar á meðal í Suður-Ameríku, er verið að auka aðgengi fólks að þungunarrofi.

Krefjumst þess að Bandaríkin þrengi ekki að mannréttindum með banni við þungunarrofi.