Belgía: Umsækjendur um alþjóðlega vernd neitað um skjól

Í kringum 2600 umsækjendur um alþjóðlega vernd í Belgíu eru bjargarlausir sökum þess að belgísk stjórnvöld neita að veita þeim skjól og aðrar nauðsynjar og þjónustu.  

Skráðu þig í SMS-aðgerðanetið.

Margir þeirra hafa ekkert annað val en að sofa á götum úti eða í bráðabirgðatjöldum. Nú þegar vetur brestur á og hitastigið fer niður fyrir frostmark þurfa belgísk yfirvöld að gera áætlun til að veita umsækjendum um alþjóðlega vernd fullnægjandi skjól og uppfylla alþjóðlegar mannréttindaskuldbindingar. 

SMS-félagar krefjast þess að belgísk yfirvöld grípi til viðeigandi aðgerða til að koma í veg fyrir neyð umsækjenda um alþjóðlega vernd og tryggi mannréttindi þeirra. 

Umsækjendur um alþjóðlega vernd í tjaldi í Belgíu