Á hverju ári í kringum 10. desember setja
hundruð þúsunda einstaklinga, frá 150 löndum og landsvæðum, nafn sitt á
milljónir bréfa og korta til stjórnvalda sem brjóta mannréttindi og þrýsta á
umbætur.
Á hverju ári í kringum 10. desember setja hundruð þúsunda einstaklinga, frá 150 löndum og landsvæðum, nafn sitt á milljónir bréfa og korta til stjórnvalda sem brjóta mannréttindi og þrýsta á umbætur. Fjöldinn allur skrifar einnig stuðningskveðjur til þolenda mannréttindabrota og veita þeim þannig styrk og vissu um að umheimurinn hafi ekki gleymt þeim.
Það kann að vera auðvelt fyrir stjórnvöld að hunsa eitt bréf en þegar milljónir slíkra bréfa berast er erfitt að líta undan. Bréfin bera árangur. Bréfin bjarga lífi.
Í rúm 50 ár hefur Amnesty International barist gegn mannréttindabrotum með pennann að vopni og á hverju ári er samviskufangi leystur úr haldi, fangar hljóta mannúðlegri meðferð, þolandi pyndinga sér réttlætinu fullnægt, fangi á dauðadeild er náðaður eða ómannúðlegri löggjöf er breytt. Á hverju ári eiga sér stað raunverulegar breytingar á lífi þolenda mannréttindabrota vegna undirskrifta ykkar og aðgerða.
Fleiri þurfa nú hjálpar við. Víða um heim er frelsi fólks ógnað. Aðgerðasinnar eru fangelsaðir og jafnvel dæmdir til dauða fyrir það eitt að tjá skoðun sína. Mótmælendur eru pyndaðir og ranglega fangelsaðir. Ungar stúlkur eru þvingaðar í hjónabönd og fá engu ráðið um líf sitt og líkama. Bréf þín, undirskrift, sms-aðgerðir og netáköll, setja þrýsting á stjórnvöld að bregðast tafarlaust við og snúa ranglæti í réttlæti.
Íslandsdeildin skorar á fólk að láta ekki sitt eftir liggja á aðventunni í baráttunni fyrir betri heimi. Á bréfamaraþoni samtakanna er hægt bregðast við vegna 12 áríðandi mála sem þurfa á athygli landans að halda. Meðal þeirra er mál Albert Woodfox sem hefur setið í fangelsi í Louisiana í Bandaríkjunum í 43 ár, þar af 40 ár í einangrun. Engar áþreifanlegar sannanir tengja Woodfox við glæpinn sem hann er ákærður fyrir.
Búrkína Fasó er einnig í brennidepli bréfamaraþonsins í ár en þar eru þúsundir ungra stúlkna þvingaðar í hjónaband á hverju ári. Í El Salvador er einnig brotið gróflega á mannréttindum kvenna og stúlkna þar sem blátt bann ríkir við fóstureyðingum í landinu. Mál Theodora del Carmen verður sérstaklega tekið fyrir en hún fæddi andvana barn árið 2007 og var í kjölfarið handtekin og dæmd í 30 ára fangelsi fyrir morð að yfirlögðu ráði. Í Grikklandi er kynþáttahatur og andúð gegn hommum útbreidd en Costas og unnusti hann urðu fyrir fólskulegri árás í ágúst 2014 sem sprottin var af slíku hatri og mismunun. Um hreinan haturglæp er að ræða. Þá verður mál samviskufangana Fred Bauma og Yves Makwambala tekið fyrir á bréfamaraþoninu 2015 en þeir eiga yfir höfði sér dauðadóm fyrir að kalla eftir lýðræðisumbótum og ábyrgð stjórnvalda í Kongó. Allir þessir þolendur mannréttindabrota þurfa sárlega á aðgerðum þínum að halda.
Bréfamaraþonið fer fram dagana 4. til 18. desember. Það hefur aldrei verið einfaldara að taka þátt. Tilbúin bréf til stjórnvalda verða á öllum þeim stöðum á landinu sem bréfamaraþonið fer fram í ár. Einnig er hægt að senda stuðningskveðjur til fórnarlamba mannréttindabrota og ný vefsíða lítur dagsins ljós þar sem með einföldum hætti verður hægt að skrifa undir öll málin með einum smell eða velja þau mál sem þú kýst að skrifa undir.
Bréfamaraþonið verður haldið á skrifstofu Íslandsdeildar Amnesty laugardaginn 12. desember frá kl. 13 til 18. Notaleg jólastemming verður í fyrirrúmi, tónlistarfólk mun gleðja gesti með söng og undirleik, og boðið verður upp á kaffi og kruðerí.
Dagskráin annars staðar verður auglýst síðar á heimasíðu samtakanna.
Bréfamaraþon Amnesty International er vitnisburður um það sem samtökin standa fyrir – baráttu einstaklinga fyrir aðra einstaklinga, hverjir sem þeir eru og hvaðan sem þeir koma! Um er að ræða einstakan viðburð þar sem máttur samstöðunnar sýnir sig í verki í kröfu um réttlæti fyrir karlmenn, konur og börn um heim allan.
