Dauðarefsingar á alþjóðavettvangi 2007

Að minnsta kosti 1.200 einstaklingar voru teknir af lífi árið 2007 og ríkisvaldið tekur marga aðra til viðbótar af lífi með leynd í löndum eins og Kína, Mongólíu og Víetnam.

Að minnsta kosti 1.200 einstaklingar voru teknir af lífi árið 2007 og ríkisvaldið tekur marga aðra til viðbótar af lífi með leynd í löndum eins og Kína, Mongólíu og Víetnam.

Þessar tölur koma fram í árlegri skýrslu Amnesty International, Dauðarefsingar og aftökur árið 2007 (Death Sentences and Executions in 2007), þar sem frá því er greint að hið minnsta 1.252 einstaklingar hafi verið teknir af lífi á síðasta ári í 51 landi. Talið er að allt að 27.500 einstaklingar séu á dauðadeildum um heim allan.

Tölurnar sýna einnig að aftökum fer fjölgandi í ýmsum ríkjum. Íran tók að minnsta kosti 317 einstaklinga af lífi árið 2007, Sádi Arabía 143 og Pakistan 135 – í samanburði við 177 í Íran, 39 í Sádi Arabíu og 82 í Pakistan árið 2006.

 

Áttatíu og átta prósent allra aftaka fóru fram í fimm löndum: Kína, Íran, Sádi Arabíu, Pakistan og Bandaríkjunum. Í Sádi Arabíu voru flestir teknir af lífi sem hlutfall af fólksfjölda, en þar á eftir koma Íran og Líbýa. Amnesty International hefur getað staðfest að 470 einstaklingar hafi verið teknir af lífi í Kína – sem setur landið í efsta sæti yfir fjölda aftaka. En samtökin telja að raunverulegar aftökutölur í Kína séu án efa miklu hærri.

Skýrslan tiltekur Kína sem forystuþjóð í aftökum í heiminum, en í landinu er dauðarefsingin flokkuð sem ríkisleyndarmál. Heimsbyggðin og gestir Ólympíuleikanna þurfa að geta sér til um þann fjölda sem landið tekur af lífi, en einungis kínversk yfirvöld vita nákvæmlega hve margt fólk hefur verið drepið með leyfi ríkisvaldsins.

Hætta verður að taka fólk af lífi með leynd: binda verður enda á leyndina sem umlykur notkun dauðarefsingarinnar. Margar ríkisstjórnir fullyrða að aftökur njóti stuðnings almennings. Fólk hefur rétt til að vita hvað verið er að gera í þeirra nafni.

 

Mörg ríki tóku fólk af lífi árið 2007 fyrir glæpi sem alla jafna þykja ekki refsiverðir, eða eftir óréttlát réttarhöld. Þar á meðal:

 

Ja’Far Kiani, tveggja barna faðir, var grýttur til dauða fyrir framhjáhald í Íran í júlí 2007.

75 ára norður-kóreskur verksmiðjustjóri var leiddur fyrir aftökusveit og drepinn í október 2007 fyrir að upplýsa ekki um bakgrunn fjölskyldu sinnar, fjárfesta í verksmiðjunni með sínu eigin fé, ráða eigin börn til stjórnunarstarfa þar og hringja til útlanda.

Egyptinn Mustafa Ibrahim var hálshöggvinn í Sádi Arabíu í nóvember 2007 fyrir að stunda galdra.

Michael Richard var tekinn af lífi í Texas í Bandaríkjunum þann 25. september eftir að yfirvöld í ríkisdómshúsinu neituðu að hafa opið 15 mínútum lengur til að gera verjendum kleift að senda áfrýjun á grundvelli lögmætis eitursprauta. Lögfræðingar Richard gátu ekki sent inn áfrýjunina vegna tölvuvandræða; þeir höfðu þegar gert forráðamönnum dómshússins grein fyrir þeim vandræðum. Hæstiréttur Bandaríkjanna neitaði síðan að stöðva aftökuna. Fyrr um daginn hafði hæstirétturinn samþykkt að endurskoða notkun eitursprauta í öðru máli, sem leiddi til allsherjarfrestunar á aftökum með eitursprautum um landið allt. Búist er við úrskurði hæstaréttar síðar á þessu ári.

 

Þrjú ríki – Íran, Sádi Arabía og Jemen – tóku brotafólk yngra en 18 ára af lífi, í trássi við alþjóðalög.

En ýmis góð tíðindi gerðust varðandi dauðarefsinguna árið 2007. Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna samþykkti með 104 atkvæðum gegn 54 (29 ríki sátu hjá) að hvetja öll ríki heimsins til að binda enda á notkun dauðarefsingarinnar.

Allsherjarþing SÞ tók þá sögulegu ákvörðun að kalla eftir því að öll lönd í heiminum hætti að taka fólk af lífi. Yfirgnæfandi fjöldi ríkja heimsins studdi þessa ákvörðun í desember síðastliðnum sem sýnir að mögulegt er að binda enda á aftökur um heim allan.

Amnesty International hvetur allar ríkisstjórnir til að fylgja fordæmi þeirrar ákvörðunar sem tekin var á Allsherjarþinginu og afnema dauðarefsinguna í eitt skipti fyrir öll.

 

LESTU MEIRA:

SÞ samþykkir ályktun um alþjóðlegt hlé á aftökum

Dauðarefsingar og aftökur 2007

Heimur: Tölfræði og dæmi um notkun dauðarefsingarinnar 2007