Dyflinnargildran

Stöðva þarf nú þegar framsal hælisleitenda til Grikklands frá ríkjum sem eiga aðild að Dyflinnar-reglugerðinni. Í nýrri skýrslu Amnesty International, Dyflinnar gildran, kemur fram að einstaklingar sem sendir eru til Grikklands á grundvelli Dyflinnar-reglugerðarinnar eiga á hættu að verða fyrir margvíslegum mannréttindabrotum

Stöðva þarf nú þegar framsal hælisleitenda til Grikklands frá ríkjum sem eiga aðild að Dyflinnar-reglugerðinni. Í nýrri skýrslu Amnesty International, Dyflinnar gildran, kemur fram að einstaklingar sem sendir eru til Grikklands á grundvelli Dyflinnar-reglugerðarinnar eiga á hættu að verða fyrir margvíslegum mannréttindabrotum, þar með talið að vera fluttir nauðugir til staða þar sem þeir eiga á hættu ofsóknir.

Í skýrslunni er að finna ítarlega úttekt á áhrifum Dyflinnar-reglugerðarinnar á réttindi hælisleitenda og nákvæma skoðun á aðstæðum þeirra í Grikklandi.

Dregið er fram hvernig grísk yfirvöld hafa brugðist að veita hælisleitendum sanngjarna málsmeðferð. Þeir  hafa ekki  fullnægjandi aðgang að lögfræðiráðgjöf, túlkaþjónustu og nauðsynlegum upplýsingum.  Dæmi eru um að  hælisleitendum hafi verið vísað nauðugum til Tyrklands.

  

Úr flóttamannabúðum í Grikklandi

Skýrsla Amnesty International sýnir fram á að forsenda Dyflinnar-reglugerðarinnar, að öll ríki sem eiga aðild að reglugerðinni veiti flóttamönnum samsvarandi vernd, stenst ekki.  Hælisleitendur sem koma fyrst til Grikklands standa oftar en ekki  frammi fyrir brotum á mannréttindum og ógn um öryggi sitt. 

Frá því í apríl 2008, hefur Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hvatt aðildarríki Dyflinnar-reglugerðarinnar til að senda ekki hælisleitendur aftur til Grikklands.  Þessi krafa Flóttamanna-stofnunarinnar var gerð vegna alvarlegra bresta í meðferð hælismála í Grikklandi, auk þess sem móttaka og aðstæður hælisleitenda í landinu eru óásættanlegar. Rannsókn Amnesty International sýnir að ástandið hefur versnað enn frekar, einkum eftir gildistöku laga í júlí 2009 þar sem áfrýjunarréttur hælisleitenda er skertur.  

Það er ljóst að hælisleitendur í Grikklandi njóta ekki nauðsynlegrar verndar og réttindi þeirra eru ekki virt að fullu. Þrátt fyrir þetta halda ríki, sem eiga aðild að Dyflinnar-reglugerðinni, áfram að senda fólk til baka til Grikklands. Þau lönd sem endursenda hælisleitendur þangað verða að horfast í augu við þá staðreynd að  hælisleitendur þar njóta ekki þeirrar verndar sem alþjóðalög kveða á um. Amnesty International leggur til að öll aðildarríki Dyflinnar-reglugerðarinnar stöðvi nú þegar allan flutning hælisleitenda til Grikklands.

Íslandsdeild Amnesty International hefur sent dómsmála- og mannréttindaráðherra, Rögnu Árnadóttur, eintak af skýrslunni ásamt bréfi þar sem fram kemur krafa um að Ísland stöðvi nú þegar allan flutning hælisleitenda til Grikklands.