Fimm einstaklingar bíða aftöku á síðustu sex vikum Trumps í embætti

Fjórir karlar og ein kona eiga yfir höfði sér aftökur í Bandaríkjunum. Ríkisstjórn forsetans fyrirskipaði upptöku aftöku alríkisins aftur eftir 17 ár. Síðastliðin 17 ár hefur dauðarefsingunni einungis verið beitt innan fárra ríkja.   

Taktu þátt í starfi Amnesty og skráðu þig í sms-aðgerðanetið hér!

Fjöldi aftaka síðan í júlí á þessu ári er fordæmalaus. Þessi mál sem hafa verið valin til aftöku eru mál þar sem réttargæsla var ófullnægjandi, bera merki um kynþáttafordóma og í sumum tilfellum eru einstaklingar með alvarleg geðræn vandamál. Allt þetta stríðir gegn alþjóðalögum.  

Amnesty fordæmir dauðarefs­ingar í öllum tilfellum undir öllum kring­um­stæðum – algjör­lega óháð glæpnum, sekt eða sakleysis eða hvernig aftakan er fram­kvæmd. 

SMS-félagar krefjast þess að dómsmálaráðherra stöðvi allar aftökur og endurskoði dauðarefsinguna í Bandaríkjunum. 

Frekari upplýsingar 

Ríkisstjórn Trumps hefur nú þegar tekið af lífi átta einstaklinga og ætlar að framkvæma fimm í viðbót þessar síðustu vikur við völd. Ef allar aftökurnar verða framkvæmdar eru þetta samtals þrettán einstaklingar á sjö mánuðum. Þessi fjöldi er fordæmalaus, ekki einungis vegna þess að á síðustu 40 árum hafa aðeins þrír verið dæmdir til dauða af alríkinu, heldur líka vegna þess að þessi fjöldi er meiri en helmingur allra aftaka í Bandaríkjunum á einu ári (22 árið 2019 og 25 árið 2018). Þetta er í fyrsta skipti í 130 ár sem alríkisstjórnin hefur fyrirskipað aftökur á meðan forsetaumskiptum stendur.