COP30: Fólk í fyrirrúmi en ekki hagnaður og völd

  • Baráttufólk gegn loftslagsbreytingum frá Brasilíu, Ekvador, Paragvæ og Perú eru þátttakendur Amnesty á COP30 en þessi lönd eru ein þau hættulegustu fyrir fólk að  berjast fyrir loftslagsbreytingum og umhverfisvernd. 
  • Amnesty International kallar á stjórnvöld að feta ekki í fótspor Trumps Bandaríkjaforseta í að afneita loftslagsvánni og sýna þess í stað raunverulega forystu í þágu loftslagsmála. 

Nú þegar COP30, árleg loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna, stendur yfir í Belém í Brasilíu kallar Amnesty International eftir því að leiðtogar á COP30 hafi fólk í fyrirrúmi í öllum samningaviðræðum í stað hagnaðar og valds. Þeir verða að skuldbinda sig til að grípa til nauðsynlegra aðgerða í þágu loftslagsmála með því að draga úr notkun jarðefnaeldsneytis af fullum þunga á réttlátan hátt og tryggja réttlát orkuskipti með sjálfbærri orku fyrir alla á öllum sviðum.  

Forysta á COP30

Þrítugasta loftslagsráðstefnan, COP30, er haldin í Brasilíu dagana 10.-21. nóvember 2025. Rúmlega 190 aðilar að Parísarsáttmálanum eru samankomnir til að ræða hvernig takast á við loftslagsvána.

Í hópi Amnesty International þetta árið er baráttufólk sem berst fyrir umhverfisvernd frá þeim löndum þar sem einna hættulegast er að eiga í slíkri baráttu: Brasilíu, Ekvador, Paragvæ og Perú. Þeirra á meðal eru baráttustúlkur fyrir Amazon-skóginum sem Íslandsdeildin hefur stutt. Vegna ofsókna fyrir mannréttindabaráttu gat margt baráttufólk ekki mætt á COP30. 

Amnesty International hvetur ríkisstjórnir til að fara ekki sömu leið og ríkisstjórn Trumps sem afneitar hraðversnandi loftslagsvanda og sýna þess í stað sanna forystu í loftslagsmálum. Streitast þarf gegn tilraunum til að draga úr fjárframlögum fyrir endurnýjanlega orku og spyrna á móti kúgunartilburðum Bandaríkjanna og annarra ríkja um að veikja stefnur og reglugerðir sem er ætlað að vinna gegn loftslagsbreytingum. 

„COP30 í Brasilíu er tækifæri fyrir andspyrnu gegn þeim sem vilja draga til baka þær skuldbindingar og framtak til að halda hlýnun jarðar undir 1,5°c. Sú staðreynd að koltvísýringur í andrúmsloftinu hafi slegið met á síðasta ári ætti að hringja viðvörunarbjöllum hjá heimsleiðtogum á COP30.“

Agnès Callamard, aðalframkvæmdastjóri Amnesty International 

Kröfur Amnesty International fyrir COP30

1. Skýr áætlun og tímalína um hvernig draga eigi úr notkun jarðefnaeldsneytis. 

  • Standa skal í skilum við þau lágu fjárframlög sem samþykkt voru á COP29 að upphæð 300 milljarðar Bandaríkjadollara.  
  • Auka þarf opinbert styrktarfjármagn. 
  • Áætlunin þarf að tryggja að alþjóðlegar fjárfestingar fari í þau verkefni sem raunverulega takast á við loftslagsbreytingar.  
  • Fjárfestingum skal ekki beina í áhættusama og ósannaða tækni sem miðar að því að taka kolefni úr andrúmsloftinu eða loftslagsverkfræði sem miðar að því að draga úr sólarljósi eða binda kolefni í sjó þar sem slík tækni gæti skaðað mannréttindi og seinkað því að dregið verði úr jarðefnaeldsneyti eins og nauðsynlegt er.  

2. Loftslagssjóður vegna tjóns og eyðileggingar  

  • Hvetja þarf ríku löndin með mikla kolefnislosun, sérstaklega þau sem bera mestu sögulegu ábyrgðina á loftslagsbreytingum, til að leggja fram ný aukaframlög í sjóð sem bregðast á við tjóni og eyðileggingu í samræmi við þörf.  
  • Stjórn sjóðsins verður að sinna störfum sínum af gagnsæi og af ábyrgð til að tryggja að sjóðurinn renni beint til samfélaga sem verða fyrir áhrifum loftslagsbreytinga og hindra áhrif frá einkageiranum.