Friðsælir mótmælendur eiga yfir höfði sér margra ára fangelsisvist

Hundruð friðsælla mótmælenda, þar á meðal börn, eiga yfir höfði sér langa fangelsisvist fyrir þátttöku í fjöldamótmælum. Brotið er á tjáningarfrelsi og fundafrelsi fólksins. 

Yfir­völd í Tælandi hafa í gegnum árin stuðst við ýmsar löggjafir til að koma í veg fyrir frið­samleg mótmæli. Árið 2015 setti herstjórnin í landinu bann við “póli­tískar” samkomur þar sem fleiri en fimm einstak­lingar koma saman.

Frá því að neyð­ar­lögin voru sett í mars 2020 hafa yfir­völd í auknum mæli hand­tekið og ákært mótmæl­endur í frið­samlegum mótmælum. Þeir hafa einnig greint frá því að hafa sætt áreitni og hótunum lögreglu­manna.

Stjórnvöld í Tælandi hafa kúgað friðsæla mótmælendur sem fara fram á umbætur í pólitík og menntun, jafnrétti og bætt réttindi kvenna og barna. Stjórnvöld hafa ákært og sett tugi mótmælenda í varðhald. Þessi þöggun er í takt við áralanga hefð yfirvalda í Tælandi, að áreita einstaklinga sem nýta réttindi sín. 

SMS-félagar krefjast þess að öll mál á hendur þessum einstaklingum verði felld niður og aðrar aðgerðir stöðvaðar, þar á meðal áreitni í þeirra garð. Einnig er þess krafist að löggjöf verði breytt og tryggt að hún fari eftir alþjóðlegum mannréttindalögum.